Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemi í eðlisefnafræði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

06.07.2026

Umsóknarfrestur

31.08.2026

Doktorsnemi í eðlisefnafræði

Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema í eðlisefnafræði við Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands. Starfið er styrkt til þriggja ára af Doktorsstyrkjasjóði Háskóla Íslands og tengist rannsóknaverkefninu Advancing Electrolyte Chemistry for Rechargeable Calcium Batteries sem er á sviði næstu kynslóðar rafhlaðana (e. next-generation batteries) og beinist að þróun raflausna fyrir endurhlaðanlegar kalsíumrafhlöður.

Endurhlaðanlegar kalsíumrafhlöður (e. calcium metal batteries) eru meðal efnilegustu næstu kynslóðar rafhlaðna sem nú eru í þróun. Kalsíum er eitt algengasta frumefni jarðskorpunnar og getur boðið upp á háa orkuþéttni. Þrátt fyrir miklar framfarir á undanförnum árum skortir enn grundvallarskilning á því hvernig hanna megi raflausnir og yfirborðslög (e. solid electrolyte interphase, SEI) sem gera kleift að hlaða og afhlaða kalsíumrafhlöður á skilvirkan og áreiðanlegan hátt. Verkefnið mun leiða til nýrrar grunnþekkingar á fjölgildum rafhlöðukerfum og leggja grunn að þróun sjálfbærra orkugeymslulausna sem draga úr háði á litíum og öðrum takmörkuðum hráefnum.

Leiðbeinandi verkefnisins er Dr. Anna B. Gunnarsdóttir, lektor í eðlisefnafræði við Háskóla Íslands. Rannsóknarhópur verkefnisins hefur aðstöðu við Raunvísindastofnun Háskóla Íslands og mun doktorsneminn starfa í öflugu, alþjóðlegu og þverfaglegu rannsóknarumhverfi ásamt öðrum doktorsnemum, nýdoktorum og erlendum samstarfsaðilum. Verkefnið felur í sér tækifæri til þátttöku í alþjóðlegum ráðstefnum og samstarfs við fremstu sérfræðinga á sviði rafhlöðurannsókna.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þróun og rannsókn á nýjum raflausnum fyrir endurhlaðanlegar kalsíumrafhlöður.

  • Rannsóknir á samspili staðbundinnar byggingar raflausna (solvation structure), myndunar yfirborðslaga (SEI) og rafefnafræðilegrar hegðunar.

  • Framkvæmd rafefnafræðilegra mælinga og túlkun gagna.

  • Notkun litrófsgreiningaraðferða, meðal annars Raman-litrófsgreiningar og kjarnsegulómunar (NMR), til að rannsaka byggingu og eiginleika raflausna.

  • Greining og túlkun rannsóknarniðurstaðna og miðlun þeirra í alþjóðlegum ritrýndum vísindagreinum og kynning á aþjóðlegum ráðstefnum.

Hæfniskröfur

  • MSc gráða í efnafræði, eðlisfræði, efnisfræði eða skyldum greinum. Umsækjandi skal hafa lokið prófi þegar starf hefst.

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og hæfni til að vinna innan teymis.

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum.

  • Góð enskukunnátta, bæði í rituðu og töluðu máli.

  • Þekking á rafefnafræði, rafhlöðum eða skyldum rannsóknarsviðum er kostur.

  • Kunnátta í gagnavinnslu og forritun, t.d. í Python eða R er kostur.

Ráðning er háð því að umsækjandi sæki formlega um doktorsnám við Raunvísindadeild á Verkfræði- og náttúruvísindasviði og að umsóknin sé samþykkt af deild.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Upphafsdagur verkefnis er umsemjanlegur en æskilegt væri að hefja störf eigi síðar en 1. janúar 2027.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Kynningarbréf (hámark ein blaðsíða) þar sem kemur fram hvað vekur áhuga umsækjanda á verkefninu, vísindalegur bakgrunnur og ástæður þess að viðkomandi vill vinna að doktorsverkefni.

  • Afrit af prófskírteinum (grunnnám og meistaranám).

  • Staðfesting á enskukunnáttu (t.d. niðurstöður úr TOEFL/IELTS/sambærilegum prófum eða stúdentspróf í ensku úr íslenskum framhaldsskóla).

  • Ferilskrá (hámark þrjár blaðsíður)

  • Upplýsingar um tvo meðmælendur, tengsl þeirra við umsækjanda og hvernig má hafa samband við þá.

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 31.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Anna Bergljót Gunnarsdóttir

Lektor

Tölvupóstur: annabg@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemi í eðlisefnafræði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

06.07.2026

Umsóknarfrestur

31.08.2026