Þjónustuaðili
Ríkislögreglustjóri
Upplýsingar um starf
Starf
Varðstjórar á fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
02.11.2026
Umsóknarfrestur
16.11.2026
Varðstjórar á fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra
Embætti ríkislögreglustjóra leitar að reyndum, metnaðarfullum og lausnarmiðuðum varðstjórum í fjarskiptamiðstöð embættisins (FMR). Um er að ræða tvær 100% stöður þar sem unnið er á vöktum allan sólarhringinn.
Fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra (FMR) gegnir mikilvægu þjónustu- og samhæfingarhlutverki fyrir lögreglulið landsins. Hún annast útkallsstýringu lögreglu, forgangsröðun verkefna og stýrir fyrstu aðgerðum þegar hættu ber að höndum. Starfssvæði hennar nær til alls landsins og er hún jafnframt samtengd starfsemi samhæfingar- og stjórnstöðvar almannavarna (SST) og hluti af áhöfn hennar.
Starfið er fjölbreytt og krefjandi og felur meðal annars í sér móttöku neyðarsímtala, mati á aðstæðum, ákvarðanatöku og miðlun upplýsinga til lögreglu og annarra viðbragðsaðila. Starfið krefst því reynslu af löggæslu, og hæfni til að taka mikilvægar ákvarðanir á skömmum tíma. Leitað er að einstaklingum sem hafa góða samskiptahæfni, sýna yfirvegun í krefjandi aðstæðum og hafa metnað til að taka þátt í að þróa og efla starfsemi fjarskiptamiðstöðvar.
Gert er ráð fyrir ráðningu frá og með 1. desember 2026, með sex mánaða reynslutíma og skipun í huga að loknu reynslutímabili.
Helstu verkefni og ábyrgð
Verksvið og ábyrgð varðstjóra eru tilgreind í 10. gr. reglugerðar nr. 1051/2006 um starfsstig innan lögreglu.
Annast samhæfingu verkefna í fjarskiptamiðstöð og tryggja faglega, skilvirka og samræmda afgreiðslu þeirra.
Annast forgangsröðun og útkallsstýringu lögreglu og tryggja viðeigandi viðbrögð við verkefnum á landsvísu.
Stýra fyrstu aðgerðum lögreglu þegar hættuástand skapast og taka ákvarðanir í samræmi við gildandi lög, reglur, verklagsreglur og viðbragðsáætlanir.
Taka á móti neyðarsímtölum, meta aðstæður og tryggja að nauðsynlegar upplýsingar berist til lögreglu og annarra viðbragðsaðila með skjótum og skilvirkum hætti.
Tryggja gott upplýsingaflæði og stuðla að samvinnu og samhæfingu milli lögregluembætta og annarra viðbragðsaðila.
Sinna öðrum verkefnum sem aðalvarðstjóri, aðstoðaryfirlögregluþjónn eða ríkislögreglustjóri fela deildinni.
Hæfniskröfur
Menntun og reynsla
Próf frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar er skilyrði.
Að lágmarki tveggja ára starfsreynsla sem lögreglumaður að loknu lögreglunámi er skilyrði.
Góð tölvukunnátta og reynsla af notkun fjarskipta- og tölvubúnaði fjarskiptamiðstöðvar er skilyrði.
Góð þekking á lögreglukerfinu (LÖKE) er skilyrði.
Reynsla af störfum innan fjarskiptamiðstöðvar er kostur.
Reynsla af stjórnun innan lögreglu er kostur.
Þekking á Schengen-upplýsingakerfinu er kostur.
Persónubundnir þættir
Góðir skipulagshæfileikar, sjálfstæði í vinnubrögðum og hæfni til að forgangsraða verkefnum.
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og geta til að vinna undir álagi.
Hæfni til að beita aðferðum við spennulækkun og eiga í uppbyggilegum samskiptum við einstaklinga í krefjandi eða viðkvæmum aðstæðum.
Góð færni í virkri hlustun, þar á meðal hæfni til að sýna nærgætni, samkennd og fagmennsku í samskiptum.
Lausnamiðuð nálgun, frumkvæði og hæfni til að taka ákvarðanir við krefjandi aðstæður.
Geta til að afla, vinna úr og leggja mat á rafrænar upplýsingar, m.a. upplýsingar af samfélagsmiðlum og veraldravefnum er kostur.
Gott vald á íslensku máli, í ræðu og riti, auk góðrar enskukunnáttu er skilyrði.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.
Embætti ríkislögreglustjóra er lifandi þekkingarvinnustaður sem býr að framúrskarandi mannauði sem sinna fjölbreyttum og samfélagslega mikilvægum verkefnum. Lögð er áhersla á opin og jákvæð samskipti, markvissa starfsþróun og samræmingu vinnu og fjölskyldulífs. Embætti ríkislögreglustjóra hefur hlotið jafnlaunavottun.
Stefna embættis ríkislögreglustjóra:
Tilgangur: Að vernda og virða
Sýn: Að vinna að öruggara samfélagi
Markmið: Að vera þjónustudrifin, framsækin og upplýsandi
Áherslur: Þjónusta - fagmennska - mannauður - tækni - reksturs
Umsóknarfrestur er til og með 16. nóvember 2026. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Áskilinn er réttur til að hafna öllum umsóknum.
Umsækjendur skulu senda inn ferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist til að sinna starfinu í samræmi við þær hæfniskröfur sem fram koma í auglýsingu. Umsóknir skulu berast rafrænt í gegnum Starfatorg. Umsækjendum um störf hjá embætti ríkislögreglustjóra kann að vera gert að leysa verkefni í ráðningarferlinu sem kæmu, auk annarra þátta, heildstætt inn í mat á hæfni þeirra til viðkomandi starfa.
Vakin er athygli á því að samkvæmt 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996 má engan skipa, setja eða ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur hlotið fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að hann varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.11.2026
Nánari upplýsingar veitir
Dagný Tra Magnadóttir
Tölvupóstur: dagny.magnadottir@logreglan.is
Þjónustuaðili
Ríkislögreglustjóri
Upplýsingar um starf
Starf
Varðstjórar á fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
02.11.2026
Umsóknarfrestur
16.11.2026