
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Atvinnuráðgjafi í geðþjónustu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
28.08.2026
Umsóknarfrestur
17.09.2026
Atvinnuráðgjafi í geðþjónustu
Geðþjónusta Landspítala auglýsir laust til umsóknar starf atvinnuráðgjafa. Í geðþjónustu er unnið eftir hugmyndafræði Indivitual placement and support (IPS).
Við leitum að öflugum liðsmanni sem hefur einlægan áhuga á að skapa tækifæri fyrir einstaklinga sem hafa hug á endurkomu á vinnumarkað. Um er að ræða fjölbreytt, krefjandi og skapandi starf á góðum vinnustað. Unnið er í dagvinnu og er upphafsdagur starfa samkomulag.
Atvinnuráðgjafi starfar í teymi atvinnuráðgjafa í geðþjónustu Landspítala.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Stuðningur við fólk og tenging við atvinnulífið
Virk þátttaka í þverfaglegu meðferðarteymi
Vinna skv. IPS hugmyndafræði
Ýmis sérhæfð verkefni sem tengjast samskiptum, samhæfingu og umbótastarfi
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Þekking á IPS hugmyndafræði
Reynsla af starfi í atvinnuráðgjöf er kostur
Mjög góð færni í mannlegum samskiptum
Sjálfstæði í vinnubrögðum, frumkvæði, lausnamiðuð hugsun, jákvæðni og sveigjanleiki
Góð færni íslensku og ensku bæði töluðu og rituðu máli
Góð almenn tölvukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Viska - stéttarfélag hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Þroskaþjálfi, hjúkrunarfræðingur, Iðjuþjálfi, málastjóri
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 17.09.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Atvinnuráðgjafi í geðþjónustu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
28.08.2026
Umsóknarfrestur
17.09.2026