Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Fjölbrauta­skóli Suður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Náms- og starfsráðgjafi í fangelsum

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

80%

Starf skráð

09.11.2026

Umsóknarfrestur

23.11.2026

Náms- og starfsráðgjafi í fangelsum

Fjölbrautaskóli Suðurlands leitar að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi í starf náms- og starfsráðgjafa í fangelsum. Um er að ræða 80% afleysingu á vorönn, frá 1. janúar til 31. maí 2027, með möguleika á áframhaldandi ráðningu.

FSu er líflegur og skapandi vinnustaður með metnaðarfullu starfsfólki og góðum starfsanda. Unnið er markvisst eftir gildum skólans sem eru fjölbreytni, sköpun, upplýsing. FSu er kjarnaskóli kennslu og náms- og starfsráðgjafar í fangelsum landsins. Helstu starfsstöðvar ráðgjafa eru á Litla Hrauni, Sogni og Hólmsheiði. Hægt er að hafa hluta af viðverutímanum í FSu á Selfossi. Nemendur í fangelsum þarfnast mikils stuðnings í námi og aðstoðar við áætlun um nám og námsframvindu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Annast náms- og starfsráðgjöf við fanga á Litla-Hrauni, Sogni og Hólmsheiði.

  • Samstarf við kennslustjóra í fangelsum og faggreinakennara á vegum FSu.

  • Samskipti og samstarf við yfirvöld fangelsismála, sérfræðinga og þjónustuaðila í málefnum fanga.

Hæfniskröfur

  • Meistarapróf í náms- og starfsráðgjöf.

  • Leyfisbréf sem kveður á um rétt til að nota starfsheitið náms- og starfsráðgjafi skv. lögum nr. 35/2009.

  • Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu í námsráðgjöf í framhaldsskóla.

  • Víðtæk þekkingu á íslensku menntakerfi er kostur.

  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.

  • Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku.

  • Faglegur metnaður, frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og jákvætt hugarfar.

  • Reynsla og hæfni í notkun upplýsingatækni, m.a. Office 365.

  • Bílpróf.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.

Umsókn skal fylgja prófskírteini, ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir því hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur. Umsækjendur þurfa að skila inn hreinu sakavottorði skv. lögum nr. 92/2008. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út nema að umsækjandi ákveði annað. Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er áhugasamt fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir. Upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu skólans.

Starfshlutfall er 80%

Umsóknarfrestur er til og með 23.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Soffía Sveinsdóttir

skólameistari

Tölvupóstur: soffia@fsu.is

Sími: 4808100

Gylfi Þorkelsson

kennslustjóri í fangelsum

Tölvupóstur: gylfi@fsu.is

Sími: 4808100

Þjónustuaðili

Fjölbrauta­skóli Suður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Náms- og starfsráðgjafi í fangelsum

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

80%

Starf skráð

09.11.2026

Umsóknarfrestur

23.11.2026