Þjónustuaðili
Vegagerðin
Upplýsingar um starf
Starf
Forstöðumaður umferðardeildar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
15.10.2026
Umsóknarfrestur
02.11.2026
Forstöðumaður umferðardeildar
Vegagerðin auglýsir eftir öflugum leiðtoga í starf forstöðumanns umferðardeildar. Verkefni deildarinnar snúa að umferð og umferðaröryggi. Á deildinni vinna sex sérfræðingar í verkefnum sem snúa að úrvinnslu og greiningu gagna um umferð og umferðaröryggi á þjóðvegakerfinu ásamt rannsóknum, áætlanagerð og faglegri ráðgjöf á þeim sviðum.
Verkefni umferðardeildar eru m.a.
Skipulagning, framkvæmd og úrvinnsla umferðartalninga, hraðamælinga og umferðarkannana
Gerð og þróun umferðarlíkana, umferðarspáa og umferðargreininga
Söfnun, úrvinnsla og greining gagna um umferðarslys og umferðaröryggi á þjóðvegakerfinu
Gerð áætlana um aðgerðir til að bæta umferðaröryggi
Framkvæmd og umsjón með umferðaröryggisúttektum á vegum og vegaumhverfi
Rannsóknir, þróun og innleiðing nýrrar þekkingar og aðferðafræði á sviði umferðar- og umferðaröryggismála
Helstu verkefni og ábyrgð
Forstöðumaður leiðir þróun og faglega starfsemi umferðardeildar. Forstöðumaður leiðir umbótaverkefni og stefnumótun, ásamt því að bera ábyrgð á hagkvæmum rekstri og skilvirkri starfsemi deildarinnar. Forstöðumaður heyrir undir framkvæmdastjóra þróunarsviðs. Starfsstöð er í Garðabæ.
Fagleg forysta og stefnumótun á sviði umferðar- og umferðaröryggismála
Yfirumsjón með umferðargreiningum, umferðarlíkönum, umferðarspám og rannsóknum á sviði umferðarmála.
Ábyrgð á greiningu umferðaröryggis, umferðaröryggisúttektum og áætlanagerð um úrbætur á þjóðvegakerfinu
Þróun aðferðafræði, verklags og gagnadrifinnar ákvarðanatöku á starfssviði deildarinnar
Fagleg ráðgjöf til stjórnenda og annarra eininga Vegagerðarinnar
Samstarf við innlenda og erlenda hagaðila á sviði umferðar- og umferðaröryggismála
Ábyrgð á áætlanagerð, kostnaðareftirliti og frávikagreiningu í rekstri deildar
Ábyrgð á starfsfólki deildarinnar og góðu starfsumhverfi
Fylgjast með alþjóðlegri þróun og nýsköpun innan fagsviðs deildarinnar
Hæfniskröfur
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Leiðtogahæfni, auk hæfni til stefnumótunar og forgangsröðunar
Háskólapróf á sviði verk- og tæknifræði, ásamt meistaraprófi sem nýtist í starfi
Haldbær reynsla af verkefnum sem umferðardeild fæst við
Mjög góð hæfni til ákvarðanatöku, eftirfylgni og verkefnastýringar
Árangursdrifni, frumkvæði og faglegur metnaður
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli
Kunnátta í norðurlandamáli er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Í umsókninni komi fram upplýsingar um fyrri störf og upplýsingar um þær hæfnikröfur sem óskað er eftir, auk afrita af prófskírteinum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.¿
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi. Um 370 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.11.2026
Nánari upplýsingar veitir
Bryndís Friðriksdóttir
framkvæmdastjóri þróunarsviðs
Tölvupóstur: bryndis.fridriksdottir@vegagerdin.is
Sími: 5221000
Þjónustuaðili
Vegagerðin
Upplýsingar um starf
Starf
Forstöðumaður umferðardeildar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
15.10.2026
Umsóknarfrestur
02.11.2026