
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Starf hjá þjónustuveri
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
90-100%
Starf skráð
30.10.2026
Umsóknarfrestur
17.11.2026
Starf hjá þjónustuveri
Landspítali auglýsir laust til umsóknar starf hjá þjónustuveri spítalans. Starfið felst í símsvörun, netspjalli, almennum móttökustörfum og ritara- og skráningarverkefnum. Viðkomandi þarf að vera þjónustulipur, með góða samskiptahæfni og sjálfstæður í starfi, með góða tölvukunnáttu og fljótur að læra og tileinka sér hlutina. Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði. Starfið er laust frá og með 1. desember 2026 eða eftir samkomulagi.
Þjónustuver og móttökur heyra undir Fasteigna- og umhverfisþjónustu sem tilheyra Rekstrar- og mannauðssviði. Þjónustuver og móttökur er þjónustulunduð deild og starfa þar um 20 einstaklingar. Deildin sinnir annars vegar símsvörun og hins vegar móttökustörfum en saman vinnum við að fjölbreyttri og mikilvægri þjónustu við deildir, sjúklinga og gesti spítalans. Unnið er í náinni samvinnu við öryggisþjónustu innan vaktmiðstöðvar ásamt því að fylgjast með öryggis- og eftirlitskerfum spítalans. Starfsfólk starfar eftir þjónustustefnu þar sem markmiðið er að vera til fyrirmyndar í þjónustu.
Við bjóðum gefandi starf hjá traustum vinnuveitanda, góðan starfsanda, gott mötuneyti og styttri vinnuviku.
Helstu verkefni og ábyrgð
Símsvörun og upplýsingagjöf til viðskiptavina og starfsfólks Landspítala
Almenn móttökustörf
Svörun fyrirspurna og upplýsingagjöf í netspjalli og tölvupósti
Ýmis skráningarverkefni o.fl. verkefni fyrir deildir spítalans
Önnur tilfallandi verkefni í samráði við teymisstjóra
Hæfniskröfur
Góð íslensku- og enskukunnátta
Framúrskarandi þjónustulund, jákvæðni og góð samskiptahæfni
Góð almenn tölvukunnátta
Önnur tungumálakunnátta kostur
Lausnamiðuð nálgun
Geta til að starfa sjálfstætt og í teymum
Stúdentspróf er æskilegt
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 einstaklingar í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 3/5
Starfshlutfall er 90-100%
Umsóknarfrestur er til og með 17.11.2026
Nánari upplýsingar veitir
Reynhildur Karlsdóttir
Tölvupóstur: reynhild@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Starf hjá þjónustuveri
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
90-100%
Starf skráð
30.10.2026
Umsóknarfrestur
17.11.2026