Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðilæknir í gigtarlækningum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

18.09.2026

Umsóknarfrestur

02.10.2026

Sérfræðilæknir í gigtarlækningum

Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis í gigtarlækningum frá 1. nóvember 2026 eða eftir samkomulagi. Um fullt starf er að ræða en lægra starfshlutfall getur komið til greina samkvæmt nánara samkomulagi.

Leitað er eftir sérfræðilækni með breiða þekkingu og reynslu í gigtarlækningum og almennum lyflækningum. Við gigtarlækningar starfa sérfræðilæknar í öflugu þverfaglegu teymi og í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir. Áhersla er lögð á góða þjónustu, virka teymisvinnu og stöðugar umbætur í þágu sjúklinga. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum góða aðlögun.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinna á legu-, dag- og göngudeild

  • Vinna við samráðskvaðningar á aðrar deildir Landspítala

  • Þátttaka í vöktum gigtarlækninga og almennum lyflækningum

  • Þátttaka í kennslu og rannsóknarstarfi

Hæfniskröfur

  • Íslenskt sérfræðileyfi í gigtarlækningum

  • Breið þekking og reynsla í gigtarlækningum og almennum lyflækningum

  • Reynsla af kennslu og rannsóknum

  • Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.3 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.

Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:

  • Fyrri störf, menntun og hæfni

  • Félagsstörf og umsagnaraðila

Nauðsynleg fylgiskjöl:

  • Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum

  • Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum

  • Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed

  • Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið

Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sérfræðilæknir, gigtarlækningar, almennar lyflækningar

Tungumálahæfni: íslenska 5/5

Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 02.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Katrín Þórarinsdóttir

Yfirrlæknir gigtarlækninga

Tölvupóstur: katrinth@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðilæknir í gigtarlækningum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

18.09.2026

Umsóknarfrestur

02.10.2026