Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemi í jarðfræði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

70-75%

Starf skráð

24.08.2026

Umsóknarfrestur

21.09.2026

Doktorsnemi í jarðfræði

Laust er til umsóknar tímabundið til þriggja ára, 70-75% starf doktorsnema í jarðfræði við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands við verkefnið ICE-MELT: Þróun kviku og tímasetning eldgosa á Langjökli á nútíma: Tengsl jökulhopunar og eldvirkni.

Markmið verkefnisins er að rannsaka tengsl jökulhopunar og eldvirkni í Langjökli með þverfaglegri nálgun sem felur í sér fornsegulmælingar, bergfræði og eðlisræna eldfjallafræði. Doktorsneminn sem valinn verður mun taka virkan þátt í öllum þáttum verkefnisins: vettvangsvinnu, sýnatöku, jarðefna- og bergfræðigreiningu, fornsegulmælingum til aldursgreiningar, gagnavinnslu og -greiningu og ritun vísindagreina. Fyrirhugaðar rannsóknir fela í sér sýnatökuferðir og jarðfræðikortlagningu við Prestahnúk og Hveravelli í nágrenni Langjökuls. Sérstök áhersla er lögð á þverfaglega nálgun sem sameinar jarðefnafræði, fornsegulmælingar og eðlisræna eldfjallafræði, sem gefur doktorsnemanum tækifæri til að læra fjölbreyttar aðferðir við að meta dýpi kvikuhólfa, aldur eldgosa og eðli gosvirkni meðan á verkefninu stendur. Rannsóknin mun auka þekkingu okkar á því hvernig afjöklun hefur áhrif á eldstöðvakerfi, sem er mikilvægt fyrir mat á eldgosahættu á Íslandi og öðrum jökulþöktum eldvirkum svæðum.

Verkefnisstjóri og leiðbeinendur verða dr. Elisa Piispa, dr. Alberto Caracciolo og dr. Rosie Cole.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Rannsóknir á tengslum jökulhopunar og eldgosa á Langjökli með jarðeðlisfræðilegum, bergfræðilegum og eldfjallafræðilegum aðferðum

  • Fornsegulmælingar til aldursgreiningar hraunlaga

  • Jarðefnagreiningar (örgreiningar (EMPA), ICP-OES, ICP-MS) og gerð hita- og þrýstingslíkana fyrir kviku (geothermobarometry)

  • Jarðfræðikortlagning og notkun myndmælinga (photogrammetry)

Hæfniskröfur

  • Meistaragráða í jarðeðlisfræði, jarðfræði eða skyldu sviði. Umsækjandi skal hafa lokið prófi þegar starf hefst

  • Hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi

  • Góð samstarfs- og samskiptahæfni

  • Góð færni í ensku, bæði í ræðu og riti

  • Hæfni til að miðla rannsóknarniðurstöðum, bæði í ræðu og riti

  • Reynsla af berg- eða segulmagnsfræði og/eða jarðefnafræði er kostur

Ráðning er jafnframt háð því að umsækjandi sæki formlega um doktorsnám við Jarðvísindadeild Háskóla Íslands og að umsóknin verði samþykkt af deildinni.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Gert er ráð fyrir að starf hefjist 1. desember 2026, eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Ferilskrá

  • Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins (hámark 2 bls)

  • Afrit af prófskírteinum og námsyfirlit með einkunnum (BS og MS gráður, eða sambærilegt, eða staðfesting frá leiðbeinanda um áætlaðan lokadag meistaraprófs)

  • Ritgerðir (BS og MS) og vísindagreinar á PDF formi

  • Upplýsingar um tvo umsagnaraðila

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 70-75%

Umsóknarfrestur er til og með 21.09.2026

Nánari upplýsingar veitir

Elisa Johanna Piispa

Rannsóknadósent

Tölvupóstur: piispa@hi.is

Alberto Caracciolo

Nýdoktor

Tölvupóstur: alberto@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemi í jarðfræði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

70-75%

Starf skráð

24.08.2026

Umsóknarfrestur

21.09.2026