Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Umbra - þjónustumið­stöð Stjórn­ar­ráðsins

Upplýsingar um starf

Starf

Starfsmaður í þjónustuver Umbru

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

31.08.2026

Umsóknarfrestur

11.09.2026

Starfsmaður í þjónustuver Umbru

Umbra - þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins leitar að starfskrafti í þjónustuver. Um er að ræða 100% starf til eins árs.

Við veitum ráðuneytum og stofnunum fjölbreytta þjónustu á sviði símsvörunar, upplýsingatækni og annars sameiginlegs reksturs.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Símsvörun fyrir ráðuneytin

  • Netspjall og svörun tölvupósta

  • Fjölbreytt tæknileg aðstoð m.a. í tengslum við innskráningar, aðgangsstýringar og rafræn skilríki ásamt veitingu leiðbeininga og ráðgjafar vegna notkunar lausna Ísland.is

  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Mjög góð samskiptahæfni ásamt ríkri þjónustulund og jákvæðni

  • Reynsla af þjónustustörfum og tæknilegri aðstoð

  • Frumkvæðni, sjálfstæði í vinnubrögðum og geta að tileinka sér nýjungar og breytingar

  • Góð almenn tölvuþekking

  • Gott vald á íslensku og ensku bæði í ræðu og riti

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn þarf að fylgja ferilská og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi.

Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starf.

Athygli er vakin á því að umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 11.09.2026

Nánari upplýsingar veitir

Anna María Þorleifsdóttir

Mannauðsstjóri

Tölvupóstur: anna.maria.thorleifsdottir@rfs.is

Þjónustuaðili

Umbra - þjónustumið­stöð Stjórn­ar­ráðsins

Upplýsingar um starf

Starf

Starfsmaður í þjónustuver Umbru

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

31.08.2026

Umsóknarfrestur

11.09.2026