Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemi við rannsókn á málþroska fjöltyngdra barna

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

14.09.2026

Umsóknarfrestur

15.10.2026

Doktorsnemi við rannsókn á málþroska fjöltyngdra barna

Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema við rannsóknarverkefnið Orðaheimurinn batnandi fer, sem miðar að því að styrkja íslenskufærni barna á leikskólaaldri. Um er að ræða íhlutunarrannsókn sem fer fram í leikskólum og er framkvæmd af leikskólakennurum. Rannsóknaverkefnið er styrkt af Rannsóknasjóði Íslands (Rannís) og verður unnið við námsleið í talmeinafræði innan Læknadeildar Háskóla Íslands og er tímabundið til þriggja ára.

Sérstök áhersla er lögð á að styrkja íslenskunám fjöltyngdra barna, einkum barna utan höfuðborgarsvæðisins, svo sem á Vestfjörðum, Suðurlandi og Austurlandi.

Doktorsneminn hefur svigrúm til að móta áherslur doktorsverkefnisins, til dæmis getur viðfangsefnið snúið að málumhverfi barna heima fyrir og í leikskólanum, mati á tali og málþroska fjöltyngdra barna, tryggð við framkvæmd íhlutunarinnar og félagslegu réttmæti íhlutunarinnar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Verkefnastjórnun og stuðningur við þátttakendur rannsóknarinnar

  • Mælingar á tal- og málþroska

  • Gagnastjórnun, gagnagreining og ritun

Hæfniskröfur

  • Meistarapróf í talmeinafræði, en til greina koma prófgráður úr skyldum greinum svo sem sálfræði, uppeldis- og menntunarfræði eða málvísindum. Umsækjandi skal hafa lokið prófi þegar starf hefst.

  • Góð færni í íslensku og ensku.

  • Sjálfstæð vinnubrögð og hæfni í mannlegum samskiptum.

  • Reynsla af starfi með leikskólabörnum, kennurum og foreldrum er æskileg.

  • Þekking á rannsóknaraðferðum (bæði eigindlegum og/eða megindlegum), gagnagreiningaraðferðum er æskileg.

  • Góð tölvukunnátta.

Ráðning í starf doktorsnema er háð því að umsókn viðkomandi um doktorsnám hafi verið samþykkt, sbr. Doktorsnám | Heilbrigðisvísindastofnun

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Áætlað er að verkefnið hefjist eigi síðar en í janúar 2027.

Mikilvægt er að viðkomandi geti ferðast til svæða utan höfuðborgarsvæðisins vegna gagnasöfnunar.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Greinargerð, þar sem umsækjandi lýsir hvernig hann uppfyllir skilyrði starfsins, hvers vegna hann hefur áhuga á að vinna verkefnið og hugmyndum sínum um framlag til verkefnisins (hámark 2 blaðsíður).

  • Ferilskrá.

  • Staðfest afrit af prófskírteinum (grunn- og meistaranám) og einkunnadreifing.

  • Upplýsingar um tvo umsagnaraðila þar sem fram koma tengsl við umsækjanda, netfang og símanúmer.

  • Yfirlit yfir birtingar.

  • Umsækjendum er einnig boðið að senda pdf-útgáfu af meistararitgerð sinni (á hvaða tungumáli sem er), sem og aðrar birtingar sem við eiga (hámark 5 skjöl).

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 15.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Kathryn Margaret Crowe

dósent

Tölvupóstur: kcrowe@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemi við rannsókn á málþroska fjöltyngdra barna

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

14.09.2026

Umsóknarfrestur

15.10.2026