
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Skrifstofumaður í móttöku meinafræðideildar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
09.09.2026
Umsóknarfrestur
21.09.2026
Skrifstofumaður í móttöku meinafræðideildar
Meinafræðideild Landspítala vill ráða til starfa skrifstofumann. Um er að ræða dagvinnustarf sem felur í sér mikil samskipti og fjölbreytt og krefjandi verkefni. Á deildinni starfa um sjötíu einstaklingar og fer þar fram fjölbreytt rannsóknastarfsemi í þágu þeirra sem nýta sér þjónustu Landspítala. Lögð er rík áhersla á jákvæðni, fagmennsku og virðingu gagnvart samstarfsfólki og vinnustaðnum.
Við leitum eftir þjónustuliprum einstaklingi með góða samskiptahæfni sem er sjálfstæður í starfi og fljótur að læra og tileinka sér hlutina. Starfshlutfall er 100% og er starfið laust nú þegar eða eftir nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
· Hefur umsjón með móttöku, flokkun og tölvuskráningu allra sýna sem berast deildinni
· Undirbúningur fyrir fundi sérfræðinga á LSH (finna til svör og smásjárgler)
· Sér um skönnun smásjárglerja
· Sér um frágang smásjárglerja
· Almenn símsvörun á deildinni
· Önnur tilfallandi verkefni í samráði við stjórnanda
Hæfniskröfur
· Stúdentspróf eða annað nám og/ eða reynsla sem nýtist í starfi
· Jákvætt viðmót, þjónustulipurð, samskiptahæfni og fagleg framkoma
· Stundvísi og áreiðanleiki
· Góð tölvufærni
· Skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
· Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, heilbrigðisritari, skrifstofustarf, móttaka
Tungumálahæfni: Íslenska 5/5, enska 4/5
Staðsetning: hús 8 v/ Barónsstíg, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 21.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Helga Sigrún Gunnarsdóttir
Tölvupóstur: helgashe@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Skrifstofumaður í móttöku meinafræðideildar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
09.09.2026
Umsóknarfrestur
21.09.2026