
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Viltu vera á skrá? Býtibúr
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
70-100%
Starf skráð
28.08.2026
Umsóknarfrestur
08.01.2027
Viltu vera á skrá? Býtibúr
Störf í býtibúri á hinum ýmsu deildum Landspítala. Veitt er markviss og einstaklingshæfð aðlögun að starfinu. Lágmarksaldur er 18 ár.
Landspítali er miðstöð þekkingar, þróunar og þverfaglegrar samvinnu. Hér starfar fjölbreyttur hópur fólks sem leggur metnað í fagmennsku og stöðugar umbætur. Við vinnum saman að því að veita góða og örugga heilbrigðisþjónustu með sjúklinginn í öndvegi. Hér fær fólk tækifæri til að vaxa og þróast í starfi. Við viljum vera einn af bestu vinnustöðum landsins, með góðum starfsskilyrðum og samkeppnishæfum kjörum.
Í þessum starfaflokki er eingöngu ráðið í tímabundnar stöður s.s.
Störf við verkefni sem standa í tvo mánuði eða skemur
Störf við afleysingar sem ekki er ætlað að standa lengur en 12 mánuði samfellt
Öll ótímabundin störf eru auglýst á Starfatorgi Landspítala og sækja þarf um þau sérstaklega. Við hvetjum þig að skoða auglýst störf hjá okkur.
Umsóknum þessum verður ekki svarað sérstaklega, en stjórnendur hafa samband við þá umsækjendur sem þeir hafa hug á að bjóða starf. Að loknum umsóknarfresti verður birt ný safnauglýsing. Ef þú vilt vera áfram á skrá er þér velkomið að leggja inn nýja umsókn.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón býtibúrs
Ýmis þrif á deild
Aðstoða við máltíðir sjúklinga
Pantanir og frágangur á vörum
Önnur tilfallandi störf í samráði við deildarstjóra
Hæfniskröfur
Jákvæðni og lipurð í samskiptum
Stundvísi, sveigjanleiki
Þjónustulund og skipulögð vinnubrögð
Íslenskukunnátta
Lágmarksaldur er 18 ár
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Efling stéttarfélag hafa gert.
Upphafsdagur starfa sem og starfshlutfall er samkomulag.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, býtibúr, eldhússtörf, þjónustustörf, almenn störf
Tungumálahæfni: Íslenska 3/5,
Staðsetning: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík
Starfshlutfall er 70-100%
Umsóknarfrestur er til og með 08.01.2027
Nánari upplýsingar veitir
Hrönn Harðardóttir
Tölvupóstur: mannaudur@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Viltu vera á skrá? Býtibúr
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
70-100%
Starf skráð
28.08.2026
Umsóknarfrestur
08.01.2027