
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sérnámsstöður í lyflækningum, seinna stig til fullra sérfræðiréttinda
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
07.09.2026
Umsóknarfrestur
28.09.2026
Sérnámsstöður í lyflækningum, seinna stig til fullra sérfræðiréttinda
Lausar eru til umsóknar sérnámsstöður á seinna stigi sérnáms í lyflækningum. Um er að ræða 2 ára framhald af fyrra stigi eftir að MRCP gráðu hefur verið lokið og skilyrðum fyrra stigs mætt. Sérnámið var þróað að breskri fyrirmynd og fer fram skv. marklýsingu fyrir fullt 5 ára sérnám í lyflækningum. Seinna stigi lýkur með fullum sérfræðiréttindum og er í samræmi við reglugerð 856/2023. Sérnámið fer fram á Landspítala auk þess sem mögulegt er að taka hluta tímans á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi. Upphafsdagur ráðningar er á bilinu janúar til mars 2027, eða samkvæmt samkomulagi við kennslustjóra sérgreinarinnar. Föstudaginn 26. febrúar 2027 er móttökudagur sérnáms.
Sjá kynningarmyndband.
Sjá nánari upplýsingar um sérnám á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinna og nám á bráðadeildum, dag- og göngudeildum og legudeildum ásamt vaktþjónustu undir handleiðslu sérfræðilækna
Þátttaka í ráðgjafaþjónustu undir handleiðslu sérfræðilækna
Kennsla lækna í sérnámsgrunni, læknanema og annarra fagstétta heilbrigðisstarfsfólks
Þátttaka í gæða- og vísindavinnu
Sérnámslæknir ber sjálfur ábyrgð á fullri þátttöku í öllum þáttum sérnáms og skrásetningu þess í samræmi við marklýsingu og skráningarkerfi
Framgangur milli námsára er ákvarðaður með árlegu framvindumati og er launasetning í samræmi við staðfesta framvindu
Þátttaka í fræðslu og hermikennslu
Hæfniskröfur
Hafa lokið fyrri hluta sérnáms í lyflækningum, MRCP gráðu
Íslenskt lækningaleyfi
Áhugi á að starfa við viðkomandi sérgrein
Að lágmarki B2 tungumálafærni í íslensku, nema um annað hafi verið samið sérstaklega
Fyrri starfsreynsla, reynsla af vísinda-, umbóta- og gæðastörfum æskileg
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
Áreiðanleiki, stundvísi og árangursmiðað viðhorf
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Umsækjendum er bent sérstaklega á að kynna sér marklýsingu sérnáms og reglugerð 856/2023.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
Fyrri störf, menntun og hæfni
Félagsstörf
Mögulega umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
Starfsferilskrá
Kynningarbréf með persónulegum markmiðum umsækjenda varðandi starfið auk rökstuðnings fyrir hæfni.
Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum.
Tilgreind reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum ásamt yfirliti yfir birtar vísindagreinar (eða í ritrýni) sem umsækjandi er höfundur að.
Val á umsækjanda byggist á heildstæðu mati á menntun, reynslu og hæfni, með hliðsjón af innsendum gögnum, viðtölum og eftir atvikum mat á hæfni við úrlausn tilfella. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali áskilur sér rétt til að falla frá áformum frá ráðningum eða ráða fleiri en einn á grundvelli auglýsingar þessarar.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sérnámslæknir, læknir, læknir með lækningaleyfi, almennur læknir
Tungumálahæfni: Íslenska 3,5, enska 3/5
Staðsetning: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 28.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Telma Huld Ragnarsdóttir
Tölvupóstur: telmhuld@landspitali.is
Margrét Dís Óskarsdóttir
Tölvupóstur: margdis@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sérnámsstöður í lyflækningum, seinna stig til fullra sérfræðiréttinda
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
07.09.2026
Umsóknarfrestur
28.09.2026