
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Teymisstjóri í aðfangaþjónstu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
16.10.2026
Umsóknarfrestur
02.11.2026
Teymisstjóri í aðfangaþjónstu
Við leitum að leiðtoga sem vill láta hugmyndir verða að framkvæmd og móta þróun deildaþjónustu sem teymisstjóri deildaþjónustu Landspítala. Framundan eru breytingar á skipulagi, þróun nýrra verkferla og innleiðing kerfa sem gera birgðastýringu einfaldari og þjónustuna skilvirkari. Hér færð þú tækifæri til að hafa bein áhrif á daglegt starf spítalans og létta undir með klínísku starfsfólki svo það geti einbeitt sér að umönnun sjúklinga.
Deildaþjónusta telur um 20 starfsmenn og hefur vaxið hratt. Teymið sér um birgðastýringu, pantanir og áfyllingu rekstrarvara og líns á deildum, auk afgreiðslu og áfyllingar starfsmannafatnaðar í fataafgreiðslum spítalans. Allar legudeildir eru þegar komnar í þjónustu og næstu skref felast í að styrkja starfsemina og taka fleiri deildir inn.
Sem teymisstjóri leiðir þú bæði daglegan rekstur og þróun þjónustunnar. Þú heyrir beint undir deildarstjóra aðfangaþjónustu og ert hluti af stjórnendateyminu þar, í nánu samstarfi við vöruhús, þvottahús og flutningaþjónustu.
Þróun starfseminnar
Deildaþjónusta býður upp á spennandi tækifæri til þróunar og þú færð mikilvægt hlutverk í að móta næstu skref. Í samráði við stjórnendateymi aðfangaþjónustu hefur þú svigrúm til að koma með eigin hugmyndir, þróa skipulag og verkferla og forgangsraða verkefnum út frá þörfum þjónustunnar.
Möguleg verkefni gætu meðal annars snúist um sjálfvirkari birgðastýringu, þar sem pantanir á vörum og líni verða til út frá þörf deilda, eða aukinn rekjanleika sem veitir betri yfirsýn yfir aðfangakeðjuna. Þróunin byggist á samstarfi við teymið, deildir spítalans og aðrar einingar aðfangaþjónustu.
Hér færð þú að fylgja hugmyndum frá greiningu og hönnun til innleiðingar og sjá áhrif þeirra í daglegum rekstri. Við leitum að leiðtoga sem nær fólki með sér og hefur áhuga á að tengja saman fólk, ferla og tækni til að bæta þjónustuna.
Öll verkefni þurfa að styðja við þjónustu á nýjum Landspítala (NLSH), samhliða áframhaldandi þjónustu á öllum núverandi þjónustustöðvum. Því þarf að þróa lausnir sem nýtast heildarstarfseminni og undirbúa teymið fyrir breytt starfsumhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Dagleg stjórnun og skipulag teymisins
Skipulag vakta, mönnunar og leyfa í samráði við deildarstjóra
Þjálfun og móttaka nýrra starfsmanna
Umsjón með birgðastýringu, pöntunum og áfyllingum á deildir spítalans
Stýra breytingum og umbótaverkefnum til að auka skilvirkni og hagkvæmni í þjónustuferlum
Þróun og innleiðing nýrra verkferla, kerfa og sjálfvirkra lausna í samstarfi við aðrar einingar aðfangaþjónustu
Tryggja eftirfylgni þjónustusamninga og gott samstarf við deildir spítalans
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. verkfræði, viðskiptafræði, tölvunarfræði eða annað
Reynsla af stjórnun og hæfni til að leiða teymi
Reynsla af breytingastjórnun, umbótaverkefnum eða innleiðingu ferla og kerfa er kostur
Reynsla af þjónustustörfum, birgðastýringu eða starfi á heilbrigðisstofnun er kostur
Góð tölvukunnátta og greiningarhæfni, skipulagshæfni og lausnamiðuð nálgun
Lipurð í mannlegum samskiptum, þjónustulund og jákvætt viðhorf ásamt heiðarleika og ábyrgð
Færni til að tjá sig á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 einstaklingar tarfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Tungumálahæfni: íslenska 5/5, enska 4/5Starfsmerkingar: teymisstjóri, aðfangaþjónusta, birgðarstjórnun, önnur stjórnunarstörf
Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.11.2026
Nánari upplýsingar veitir
Arna Lind Sigurðardóttir
Tölvupóstur: arnal@landspitali.is
Karen Helga Díönudóttir
Tölvupóstur: karenhd@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Teymisstjóri í aðfangaþjónstu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
16.10.2026
Umsóknarfrestur
02.11.2026