
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði - Gjörgæsla Fossvogi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
08.09.2026
Umsóknarfrestur
18.09.2026
Sjúkraliði - Gjörgæsla Fossvogi
Við viljum ráða metnaðarfullan sjúkraliða til starfa á gjörgæsludeild Landspítala í Fossvogi. Áhugavert og fjölbreytt starf með góðu samstarfsfólki. Í boði er góð einstaklingsaðlögun undir leiðsögn reyndra sjúkraliða og frábært starfsumhverfi. Starf á gjörgæsludeild býður upp á tækifæri til að þróa með sér mikla faglega þekkingu og hæfni í sjálfstæðum vinnubrögðum.
Unnið er í vaktavinnu og er starfshlutfall 80-100%. Ráðið er í starfi frá 1. nóvember n.k. eða eftir nánara samkomulagi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er nú 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Gjörgæsla heyrir undir skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu og starfa rúmlega 70 starfsmenn, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og annað starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni, í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum og á öðrum deildum spítalans. Deildin þjónar einstaklingum, bæði börnum og fullorðnum, sem þarfnast gjörgæslumeðferðar af margvíslegum ástæðum. Þar er veitt almenn gjörgæslumeðferð ásamt mjög sérhæfðri meðferð sjúklinga með fjöláverka eftir alvarleg slys, höfuðáverka, brunasjúklinga og einstaklinga með alvarlega æðasjúkdóma.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ber ábyrgð á að veita skjólstæðingum sínum hjúkrun í samræmi við sýn og stefnu hjúkrunar á Landspítala
Skipuleggur og forgangsraðar störfum sínum í samráði við hjúkrunarfræðing og í samræmi við þar til gerða hjúkrunaráætlun
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Ýmis verkefni í samráði við deildarstjóra
Hæfniskröfur
Íslenskt sjúkraliðaleyfi
Faglegur metnaður og framsækni í starfi
Sveigjanleiki, jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
Hæfni til að vinna í teymi
Áhugi og hæfni til að takast á við breytingar
Góð íslenskukunnátta í mæltu og rituðu máli
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sjúkraliði, hjúkrun, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 18.09.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði - Gjörgæsla Fossvogi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
08.09.2026
Umsóknarfrestur
18.09.2026