
Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur í tímabundið starf - Heilsugæslan Mosfellsumdæmi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
70-100%
Starf skráð
16.09.2026
Umsóknarfrestur
28.09.2026
Hjúkrunarfræðingur í tímabundið starf - Heilsugæslan Mosfellsumdæmi
Heilsugæslan Mosfellsumdæmi leitar að hjúkrunarfræðingi í tímabundið starf í eitt ár. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. desember nk. eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Við leitum að hjúkrunarfræðingi sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt, krefjandi og skemmtileg verkefni á spennandi vettvangi sem er í sífelldri þróun. Lögð er áhersla á þverfaglega og góða samvinnu fagstétta með hag skjólstæðingsins að leiðarljósi. Margvísleg tækifæri og spennandi tímar eru framundan í nýju húsnæði með góðri vinnuaðstöðu.
Meginstarfssvið er skólaheilsugæsla og hjúkrunarmóttaka. Um er að ræða spennandi starfsvettvang fyrir hjúkrunarfræðinga sem hafa áhuga á að starfa með börnum og taka þátt í þróun heilsugæsluhjúkrunar.
Heilsugæslan Mosfellsumdæmi þjónar fyrst og fremst íbúum í Mosfellsbæ, á Kjalarnesi, í Kjós og nágrenni en öllum er frjálst að skrá sig á stöðina.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Helstu verkefni og ábyrgð
Opin og bókuð móttaka
Í móttöku sinna hjúkrunarfræðingar fólki á öllum aldri, bráðaerindum, bókuðum tímum og símaráðgjöf ásamt því að svara skilaboðum í gegnum Heilsuveru. Í bókaðri móttöku er tekið á móti erindum s.s. ferðamannaheilsuvernd, sárameðferð, lyfjagjöfum ásamt heilsueflandi móttöku.
Skólahjúkrun
Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir viðkomandi öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni.
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Reynsla af starfi í heilsugæslu æskilegt
Reynsla af fjölskylduhjúkrun kostur
Áhugi og vilji til að vinna með börnum og fjölskyldum
Þekking á forvarnar- og heilsueflingarstarfi kostur
Þekking á réttindum barna
Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
Reynsla og áhugi á teymisvinnu
Reynsla af bráða- og slysamóttöku er kostur
Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
íslenskukunnátta skilyrði
Góð almenn tölvukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdastjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.
Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 70-100%
Umsóknarfrestur er til og með 28.09.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur í tímabundið starf - Heilsugæslan Mosfellsumdæmi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
70-100%
Starf skráð
16.09.2026
Umsóknarfrestur
28.09.2026