
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sérhæfður starfsmaður á æðaþræðingu- og inngripsröntgendeild í Fossvogi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
10.09.2026
Umsóknarfrestur
25.09.2026
Sérhæfður starfsmaður á æðaþræðingu- og inngripsröntgendeild í Fossvogi
Við auglýsum eftir öflugum, þjónustuliprum og skipulögðum einstaklingi til starfa á inngrips- og æðaþræðingardeild Landspítala í Fossvogi.
Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni sem tengjast skipulagi þjónustu við sjúklinga, tímabókunum og innköllunum, samskiptum við sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólk, auk umsjónar með rekstrarvörum deildarinnar. Viðkomandi þarf að hafa góða yfirsýn, vera sjálfstæður í starfi, sýna frumkvæði og nákvæmni og hafa góða þjónustulund.
Á deildinni starfar samheldið og þverfaglegt teymi sem sinnir fjölbreyttum rannsóknum og inngripum, þar á meðal æðaþræðingum, sýnatökum, drenísetningum, brennsluaðgerðum og öðrum myndstýrðum inngripum.
Um er að ræða 80-100% starf í dagvinnu og er starfið laust nú þegar eða eftir nánara samkomulagi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir sem stuðlar að betra jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón með innköllunum og tímabókunum sjúklinga í rannsóknir og inngrip
Samskipti við sjúklinga og/ eða aðstandendur varðandi undirbúning og tímasetningar
Símsvörun og afgreiðsla fyrirspurna
Samskipti við lækna, geislafræðinga, hjúkrunarfræðinga og annað heilbrigðisstarfsfólk
Pantanir, móttaka, áfylling og umsjón með rekstrarvörum deildarinnar
Umsjón með skráningum og eftirfylgd tengdri starfsemi deildarinnar
Þátttaka í skipulagi þjónustunnar og samhæfingu verkefna innan deildarinnar
Önnur tilfallandi verkefni samkvæmt samráði við deildarstjóra
Hæfniskröfur
Menntun sem heilbrigðisgagnafræðingur, sjúkraliði eða önnur sambærileg heilbrigðismenntun
Reynsla af störfum innan heilbrigðisþjónustu
Góð almenn tölvukunnátta og reynsla af rafrænum upplýsingakerfum
Mjög góð íslenskukunnátta og góð enskukunnátta í rituðu og töluðu máli
Góð skipulagshæfni, geta til forgangsröðunar og að vinna undir álagi
Afbragðs samskiptahæfni og rík þjónustulund
Jákvætt viðhorf, frumkvæði og sveigjanleiki
Hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta.Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, heilbrigðisgagnafræðingur, sjúkraliði, heilbrigðisritari, sérhæfður starfsmaður
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5
Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 25.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Sandra Guðmundsdóttir
Tölvupóstur: sandrags@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sérhæfður starfsmaður á æðaþræðingu- og inngripsröntgendeild í Fossvogi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
10.09.2026
Umsóknarfrestur
25.09.2026