Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Félagsráðgjafi - Heilsugæslan Garðabæ

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

60-80%

Starf skráð

07.10.2026

Umsóknarfrestur

22.10.2026

Félagsráðgjafi - Heilsugæslan Garðabæ

Hefur þú áhuga á fjölbreyttum, krefjandi og skemmtilegum verkefnum í starfi sem er í stöðugri þróun?

Heilsugæslan Garðabæ leitar að félagsráðgjafa í nýtt og spennandi starf. Um er að ræða 60 til 80% ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst, eða eftir nánara samkomulagi.

Á heilsugæslustöðinni starfa sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Mikil þróunarvinna er í gangi og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga. Hjá okkur ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.

Heilsugæslan Garðabæ býður upp á fjölskylduvænt vinnufyrirkomulag og gott starfsumhverfi.

Til greina getur komið að ráða tímabundið áhugasaman reynsluminni félagsráðgjafa í ábyrgðarminna starf fáist ekki félagsráðgjafi með reynslu í starfið.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins).

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þátttaka í þróun og uppbyggingu félagsþjónustu í heilsugæslu

  • Teymisvinna með læknum, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum, riturum og sálfræðingum

  • Einstaklingsbundin stuðningsviðtöl og ráðgjöf sem lítur að sálfélagslegum vanda ásamt framfærsluúrræðum, félagslegum úrræðum og réttindamálum

  • Fjölskylduráðgjöf af ýmsum toga

  • Samstarf við aðrar stofnanir og þjónustuveitendur s.s. heilbrigðisstofnanir, þjónustumiðstöðvar, starfsendurhæfingu, TR, SÍ o.fl.

Hæfniskröfur

  • Leyfi frá embætti landlæknis til að starfa sem félagsráðgjafi

  • Hefur að jafnaði a.m.k. 2 ára starfsreynslu í faggreininni

  • Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu félagsþjónustu í heilsugæslu

  • Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi

  • Reynsla og áhugi fyrir þverfaglegri teymisvinnu

  • Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum

  • Góð íslenskukunnátta skilyrði

  • Góð almenn tölvukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdarstjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. . HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.

Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 60-80%

Umsóknarfrestur er til og með 22.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Gerður Aagot Árnadóttir

Forstöðumaður

Tölvupóstur: gerdur.aagot.arnadottir@heilsugaeslan.is

Sími: 513 5500

Margrét Björnsdóttir

Fagstjóri hjúkrunar

Tölvupóstur: margret.bjornsdottir@heilsugaeslan.is

Sími: 513 5500

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Félagsráðgjafi - Heilsugæslan Garðabæ

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

60-80%

Starf skráð

07.10.2026

Umsóknarfrestur

22.10.2026