Þjónustuaðili
Heilbrigðisráðuneytið
Upplýsingar um starf
Starf
Laust starf í þjónustuveri Stafrænnar heilsu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
11.09.2026
Umsóknarfrestur
28.09.2026
Laust starf í þjónustuveri Stafrænnar heilsu
Stafræn heilsa leitar að lausnamiðuðum og jákvæðum einstaklingi með ríka þjónustulund til starfa í þjónustuveri. Þjónustuverið sinnir allri framlínu- og notendaþjónustu á sviði upplýsingatækni Stafrænnar heilsu, ásamt daglegum rekstri og vöktun tæknilegra innviða.
Hjá Stafrænni heilsu starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga á sviði upplýsinga- og heilbrigðistækni að margvíslegum og spennandi verkefnum. Markmið Stafrænnar heilsu er að leiða þróun og þjónustu stafrænnar heilbrigðisþjónustu á landsvísu og að veita framúrskarandi þjónustu við heilbrigðisstofnanir. Stafræn heilsa er skrifstofa í heilbrigðisráðuneytinu og heyrir undir yfirstjórn þess.
Helstu verkefni og ábyrgð
Tækni- og notendaþjónusta í síma og á vettvangi
Greining, skráning og úrlausn erinda í beiðnakerfum
Aðstoð við notendur vegna aðganga, kerfa og tæknibúnaðar
Eftirfylgni með erindum og samstarf við önnur teymi við úrlausn flóknari mála
Þátttaka í daglegum rekstri og vöktun tæknilegra innviða
Þátttaka í umbótastarfi þjónustuversins
Hæfniskröfur
Haldgóð þekking og reynsla af upplýsingatækni
Þekking á Microsoft 365 umhverfi
Menntun sem nýtist í starfi er kostur
Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
Gott vald á íslensku og ensku
Þjónustulund og færni í mannlegum samskiptum
Greiningarhæfni, sjálfstæði og lausnarmiðuð viðhorf
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Um er að ræða áhugavert og fjölbreytt starf í krefjandi starfsumhverfi þar sem reynir á öguð vinnubrögð, ábyrgð og sjálfstæði.
Áhugasamir einstaklingar eru hvattir til að sækja um starfið óháð kyni. Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá, afrit af prófskírteinum og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur nr. 1000/2019 um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Ráðið verður í starfið frá 1. október 2026 en æskilegt er að viðkomandi getið hafið störf sem fyrst.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 28.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Heilbrigðisráðuneytið
Upplýsingar um starf
Starf
Laust starf í þjónustuveri Stafrænnar heilsu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
11.09.2026
Umsóknarfrestur
28.09.2026