
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunardeildarstjóri göngudeildar innkirtla- og gigtarsjúkdóma
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
02.09.2026
Umsóknarfrestur
21.09.2026
Hjúkrunardeildarstjóri göngudeildar innkirtla- og gigtarsjúkdóma
Laus er til umsóknar staða hjúkrunardeildarstjóra á göngudeild innkirtla- og gigtarsjúkdóma. Starfið er unnið í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra, forstöðuhjúkrunarfræðing, yfirlækni og aðra stjórnendur og samstarfsfólk.
Á deildinni starfar samhent teymi heilbrigðisstarfsfólks sem sinnir göngudeildarþjónustu vegna gigtarsjúkdóma annars vegar og innkirtlasjúkdóma hins vegar. Deildin er staðsett á Eiríksgötu 5 í hjarta miðborgarinnar ásamt göngudeild augnsjúkdóma, brjóstamiðstöð og erfðagreiningu.
Hjúkrunardeildarstjóri er leiðtogi sem hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi, þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslega ábyrgð. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. nóvember 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Næsti yfirmaður er forstöðuhjúkrunarfræðingur ferlideilda bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi, gæðum og þróun starfseminnar
Starfsmannaábyrgð og dagleg stjórnun starfsfólks á deildinni
Fjárhagsleg ábyrgð á rekstri deildarinnar
Tryggir að öryggis-, gæða- og umbótastarfi sé framfylgt
Þátttaka í vísinda- og rannsóknarstarfi deildarinnar
Starfar náið með deildarstjórum hjúkrunar innan þjónustunnar og er virkur þátttakandi í samstarfi þeirra á milli
Framfylgir stefnu og áherslum framkvæmdastjórnar Landspítala
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
Framhaldsmenntun í hjúkrun og/eða önnur viðbótarmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi er kostur
Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri ásamt stýringu mannauðs er kostur
Leiðtogahæfni, frumkvæði, áhugi og metnaður til að leiða breytingar og umbætur
Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
Mjög góð hæfni í samskiptum og jákvætt viðmót
Sýn og hæfni til að leiða faglega þróun hjúkrunar og gæða- og öryggismál
Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.¿¿¿
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunardeildarstjóri, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, deildarstjóri, stjórnunarstarf
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Fossvogur, 108
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 21.09.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunardeildarstjóri göngudeildar innkirtla- og gigtarsjúkdóma
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
02.09.2026
Umsóknarfrestur
21.09.2026