Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Klínískur yfirlæknir í brjóstholsskurðlækningum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

-100%

Starf skráð

13.11.2026

Umsóknarfrestur

02.12.2026

Klínískur yfirlæknir í brjóstholsskurðlækningum

Laust er til umsóknar starf metnaðarfulls sérfræðilæknis í stöðu klínísks yfirlæknis, yfirlæknis 1, í hjarta- og brjóstholsskurðlækningum.

Næsti yfirmaður er yfirlæknir sérgreinarinnar.

Starfið felst klínískri vinnu, að annast sérhæfða meðferð og eftirfylgd sjúklinga sérgreinarinnar, í samræmi við vinnuskipulag lækna á sérgreininni ásamt faglegri ábyrgð á skilgreindum verkefnum sem er úthlutað af yfirlækni.

Starfið er 100% starf með helgun á Landspítala, en heimilt er að sinna vísindastarfi eða verkefnum innan stjórnsýslu, í samráði við næsta yfirmann.

Við hjarta- og lungnaskurðlækningar starfa sérfræðilæknar í öflugum þverfaglegum teymum og í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir spítalans. Sérgreinin býður upp á líflegt og krefjandi starfsumhverfi og tækifæri til starfsþróunar. Áhersla er lögð á góða þjónustu, virka teymisvinnu og stöðugar umbætur í þágu sjúklinga.

Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum góða aðlögun. Starfið er laust nú þegar eða samkvæmt samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sérfræðistörf í samráði við yfirlækni sérgreinarinnar, s.s. greining, meðferð og eftirfylgd sjúklinga með vandamál er tengjast brjóstholsskurðlækningum, þ.m.t. vinna á skurðstofu, legudeild, gjörgæslu, göngudeild og samráðskvaðningar við sérgreinar Landspítala og einnig samráðskvaðningar annarsstaðar að af landinu

  • Þátttaka í vöktum samkvæmt vaktafyrirkomulagi sérgreinarinnar

  • Leiðir daglega vinnu á einingu/deild í samvinnu við næsta yfirmann

  • Leiðir faglega þróun innan síns ábyrgðarsviðs í samráði við næsta yfirmann

  • Þátttaka í gæða- og umbótastarfi innan sérgreinar í samráði við yfirlækni/forstöðulækni

  • Stuðlar að öflugu vísinda, nýsköpunar - og menntastarfi í samræmi við vísindaáætlun Landspítala

  • Stuðlar að sí- og endurmenntun lækna sérgreinar/einingar til að mæta þörfum þjónustunnar

Hæfniskröfur

  • Íslenskt sérfræðileyfi brjóstholsskurðlækningum

  • Reynsla af kennslu og vísindastörfum

  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri

  • Framúrskarandi samskiptahæfni

  • Sýnir fagmennsku, umhyggju og virðingu í samskiptum

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Skurðlæknafélag Íslands hafa gert.

Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.3 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.

Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:

  • Fyrri störf, menntun og hæfni

  • Félagsstörf og umsagnaraðila

Nauðsynleg fylgiskjöl:

  • Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum

  • Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum

  • Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed

  • Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið

Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum

Íslenskukunnátta 4/5, enskukunnátta 4/5

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er -100%

Umsóknarfrestur er til og með 02.12.2026

Nánari upplýsingar veitir

Tómas Þór Kristjánsson

yfirlæknir

Tölvupóstur: tomaskri@landspitali.is

Sími: 825-3806

Hlíf Steingrímsdóttir

forstöðulæknir

Tölvupóstur: hlifst@landspitali.is

Sími: 824-5286

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Klínískur yfirlæknir í brjóstholsskurðlækningum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

-100%

Starf skráð

13.11.2026

Umsóknarfrestur

02.12.2026