Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Viltu vera á skrá? Læknir með lækningaleyfi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

28.08.2026

Umsóknarfrestur

08.01.2027

Viltu vera á skrá? Læknir með lækningaleyfi

Veitt er markviss og einstaklingshæfð aðlögun með reyndum sérfræðilæknum.

Ef óskir eru um ákveðið svið/ deild skal skrá þær í ,,Annað'' reitinn.

Landspítali er miðstöð þekkingar, þróunar og þverfaglegrar samvinnu. Hér starfar fjölbreyttur hópur fólks sem leggur metnað í fagmennsku og stöðugar umbætur. Við vinnum saman að því að veita góða og örugga heilbrigðisþjónustu með sjúklinginn í öndvegi. Hér fær fólk tækifæri til að vaxa og þróast í starfi. Við viljum vera einn af bestu vinnustöðum landsins, með góðum starfsskilyrðum og samkeppnishæfum kjörum.

Í þessum starfaflokki er eingöngu ráðið í tímabundnar stöður s.s.

  • Störf við verkefni sem standa í tvo mánuði eða skemur

  • Störf við afleysingar sem ekki er ætlað að standa lengur en 12 mánuði samfellt

Öll ótímabundin störf eru auglýst á Starfatorgi Landspítala og sækja þarf um þau sérstaklega. Við hvetjum þig að skoða auglýst störf hjá okkur.

Umsóknum þessum verður ekki svarað sérstaklega, en stjórnendur hafa samband við þá umsækjendur sem þeir hafa hug á að bjóða starf. Að loknum umsóknarfresti verður birt ný safnauglýsing. Ef þú vilt vera áfram á skrá er þér velkomið að leggja inn nýja umsókn.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þátttaka í klínísku starfi á bráða-, göngu- og legudeildum auk möguleika á bakvöktum

  • Vinna við ráðgjöf undir umsjón sérfræðilækna

  • Kennsla lækna í sérnámsgrunni og annarra fagstétta heilbrigðisstarfsmanna, eftir því sem við á

  • Þátttaka í vísindastarfi, þróunar- og gæðaverkefnum

Hæfniskröfur

  • Hafa lokið sérnámsgrunni eða sambærilegu starfsnámi við upphaf starfa

  • Almennt íslenskt lækningaleyfi

  • Góð færni í mannlegum samskiptum

  • Öguð vinnubrögð

  • Íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Upphafsdagur starfa sem og starfshlutfall er samkomulag.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Læknir, læknir með lækningaleyfi

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Staðsetning: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík

Starfshlutfall er 60-100%

Umsóknarfrestur er til og með 08.01.2027

Nánari upplýsingar veitir

Garðar Örn Þórsson

Tölvupóstur: gardarth@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Viltu vera á skrá? Læknir með lækningaleyfi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

28.08.2026

Umsóknarfrestur

08.01.2027