
Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur - Upplýsingamiðstöð HH
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
30-50%
Starf skráð
15.10.2026
Umsóknarfrestur
26.10.2026
Hjúkrunarfræðingur - Upplýsingamiðstöð HH
Vilt þú verða hluti af öflugum hópi hjúkrunarfræðinga á Upplýsingamiðstöð HH?
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýsir eftir hjúkrunarfræðingum til starfa við Upplýsingamiðstöð HH. Um er að ræða tímabundið starf til eins árs í dagvinnu. Æskilegt er að viðkomandi hefji störf 1. nóvember nk. eða eftir nánara samkomulagi
Við leitum að hjúkrunarfræðingi sem eru tilbúinn að takast á við fjölbreytt, krefjandi og skemmtileg verkefni tengd ferðamannaheilsuvernd. Upplýsingamiðstöðin leggur áherslu á þverfaglegt samstarf og góða teymisvinnu.
Ef þú hefur áhuga á ferðamannaheilsuvernd og framþróun í heilsugæslunni þá hvetjum við þig til að sækja um
Helstu verkefni og ábyrgð
Sinna ferðamannaheilsuvernd
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Sjálfstæði í starfi, skipulagningarhæfni og öguð vinnubrögð
Reynsla af heilsugæslu er æskilegt
Reynsla af störfum á heilbrigðisstofnun á landsbyggðinni er kostur
Mikill sveigjanleiki og samskiptahæfni
Geta til að vinna undir álagi
Íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti skilyrði
Góð tölvukunnátta skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdastjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 30-50%
Umsóknarfrestur er til og með 26.10.2026
Nánari upplýsingar veitir
Ingibjörg Rós Kjartansdóttir
Tölvupóstur: ingibjorg.ros.kjartansdottir@heilsugaeslan.is
Sími: 513-6400

Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur - Upplýsingamiðstöð HH
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
30-50%
Starf skráð
15.10.2026
Umsóknarfrestur
26.10.2026