Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Deildarstjóri á legudeild geðdeildar við Sjúkrahúsið á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
29.10.2026
Umsóknarfrestur
09.11.2026
Deildarstjóri á legudeild geðdeildar við Sjúkrahúsið á Akureyri
Við leitum að öflugum leiðtoga með faglega hæfni og farsæla reynslu af stjórnun, rekstri og eflingu mannauðs til að veita legudeild geðdeildar Sjúkrahússins á Akureyri forstöðu. Viðkomandi þarf að búa yfir afburða hæfni í mannlegum samskiptum og stuðla að teymisvinnu innan deildar sem og við aðra stjórnendur og samstarfsaðila.
Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri klínískrar þjónustu. Um er að ræða 100% stöðu í dagvinnu og er staðan laus frá 1. janúar n.k.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfsmannaábyrgð, dagleg stjórnun starfsmanna og uppbyggingu mannauðs á deildinni
Ber ábyrgð á og stjórnar faglegri þróun, rekstri og starfsmannahaldi deildarinnar
Ber ábyrgð á gæðum þjónustunnar og tryggir að öryggis-, gæða- og umbótastarfi sé framfylgt í samráði við forstöðulækna sviðsins
Framfylgir stefnu og áherslum framkvæmdarstjórnar sjúkrahússins
Hæfniskröfur
Umsækjandi skal hafa fullgilt hjúkrunarpróf frá viðurkenndri menntastofnun og gilt íslenskt starfsleyfi
Að minnsta kosti 3 ára starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
Farsæl stjórnunareynsla
Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi
Þekking og reynsla af gæða- og umbótastarfi
Reynsla af verkefnastjórnun og innleiðingu nýjunga er kostur
Skipulögð, vönduð og öguð vinnubrögð
Jákvætt viðmót og framúrskarandi samskipta- og leiðtogahæfni
Góð íslenskukunnátta
Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um starfið. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 09.11.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Deildarstjóri á legudeild geðdeildar við Sjúkrahúsið á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
29.10.2026
Umsóknarfrestur
09.11.2026