
Þjónustuaðili
Barna- og fjölskyldustofa
Upplýsingar um starf
Starf
Hópstjórar á búsetukjörnum á höfuðborgarsvæðinu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
02.10.2026
Umsóknarfrestur
12.10.2026
Hópstjórar á búsetukjörnum á höfuðborgarsvæðinu
Vilt þú taka þátt í krefjandi og gefandi starfi með börnum og unglingum? Barna- og fjölskyldustofa auglýsir lausar til umsóknar stöður hópstjóra í búsetukjörnum fyrir börn og unglinga með fjölþættar stuðningsþarfir. Markmið búsetukjarnanna er að skapa þeim sem þar búa öruggt og stöðugt heimili þar sem þau fá einstaklingsmiðaðan stuðning sem stuðlar að velferð þeirra, þroska og farsæld. Starfið heyrir undir forstöðumann og deildarstjóra heimilisins. Um er að ræða 100% starf í vaktavinnu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Veita börnum og unglingum einstaklingsbundinn stuðning í daglegu lífi og styðja þau í námi, vinnu, tómstundum og athöfnum daglegs lífs til að efla færni þeirra og sjálfstæði.
Ábyrgð á vaktstjórn á heimilinu utan hefðbundins dagvinnutíma eða í fjarveru yfirmanns.
Samskipti við forsjáraðila, vistunaraðila og samstarfsaðila.
Vinna eftir verklagsreglum heimilisins og þeim gagnreyndum aðferðum sem unnið er eftir á heimilinu.
Hafa umsjón með skráningu dagnóta og atvika samkvæmt verklagsreglum.
Tryggja öryggi skjólstæðinga.
Almenn heimilisstörf.
Önnur tilfallandi verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.
Hæfniskröfur
BA/BS próf sem nýtist í starfi er kostur
Áhugi og/eða reynsla af starfi með börnum og unglingum með fjölþættar stuðningsþarfir.
Reynsla og/eða þekking af gagnreyndum aðferðum í vinnu með börnum með fjölþættar stuðningsþarfir.
Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum er nauðsynleg.
Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
Sveigjanleiki og þjónustulund.
Gott líkamlegt atgervi og andlegt heilbrigði.
Góð íslenskukunnátta í mæltu og rituðu máli, enskukunnátta æskileg.
Gild ökuréttindi.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Við úrvinnslu umsókna um störfin gildir mat Barna- og fjölskyldustofu á hæfni og eiginleikum umsækjenda. Vakin er athygli á að stofnunin aflar sjálf upplýsinga úr sakaskrá áður en viðkomandi hefur störf. Barna- og fjölskyldustofa hvetur öll til að sækja um, óháð kyni.
Með umsóknum skulu fylgja upplýsingar um menntun og fyrri störf. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Allar umsóknir gilda í sex mánuði frá birtingu ef starf losnar að nýju innan þess tíma.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 12.10.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þórarinn Freyr Grettisson
forstöðumaður búsetukjarna
Tölvupóstur: thorarinn.freyr.grettisson@bofs.is
Sími: 5302600

Þjónustuaðili
Barna- og fjölskyldustofa
Upplýsingar um starf
Starf
Hópstjórar á búsetukjörnum á höfuðborgarsvæðinu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
02.10.2026
Umsóknarfrestur
12.10.2026