Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Rekstrarstjóri - Egilsstaðir og Vopnafjörður
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
04.11.2026
Umsóknarfrestur
16.11.2026
Rekstrarstjóri - Egilsstaðir og Vopnafjörður
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan rekstrarstjóra til að leiða daglegan rekstur stofnunarinnar á Egilsstöðum og Vopnafirði.
Leitað er að einstaklingi með ríka leiðtogahæfni, góða samskiptafærni og skipulögð vinnubrögð sem hefur áhuga á að taka virkan þátt í stjórnun, þróun og umbótum í starfsemi HSA.
Rekstrarstjóri starfar í nánu samstarfi við forstjóra, framkvæmdastjórn og aðra stjórnendur HSA. Næsti yfirmaður er forstjóri stofnunarinnar.
Rekstrarstjóri gegnir lykilhlutverki í daglegum rekstri stofnunarinnar, vinnur náið með stjórnendum og starfsfólki þvert á starfseiningar og á sæti í framkvæmdateymi HSA.
Um er að ræða 100% starfshlutfall í dagvinnu með sveigjanlegum vinnutíma. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. desember 2026 eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Dagleg stjórnun, skipulag og umsjón með rekstri HSA á Egilsstöðum og Vopnafirði.
Rekstrar-, mannauðs- og stjórnunarábyrgð á stoðdeildum, þ.e. þvottahúsi, ræstingu, eldhúsi, móttöku og heilbrigðisgagnafræðingum.
Forysta og samhæfing í rekstri, með áherslu á skilvirkni, gæði og hagkvæma nýtingu fjármuna.
Stýring rekstrarstjórnar á Egilsstöðum og Vopnafirði og virk þátttaka í framkvæmdateymi HSA.
Umsjón með rekstri og aðstöðu húsnæðis í samstarfi við tæknideild.
Þátttaka í mannauðsmálum, ráðningum og þróun starfsemi í samstarfi við stjórnendur og framkvæmdastjóra mannauðs.
Eftirfylgni með rekstrar- og aðgerðaráætlunum og þátttaka í umbóta- og þróunarverkefnum.
Efling samstarfs og samhæfingar milli starfseininga með áherslu á jákvæða vinnustaðamenningu og árangursríka teymisvinnu.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
Þekking og reynsla af rekstri og stjórnun er æskileg.
Reynsla af starfsemi heilbrigðisþjónustu er kostur.
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
Leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri í starfi ásamt getu til að leiða og hrinda breytingum í framkvæmd.
Frumkvæði, áreiðanleiki, skipulagshæfni, jákvætt viðmót og lausnarmiðuð nálgun.
Góð almenn tölvukunnátta.
Mjög góð íslenskukunnátta og góð enskukunnátta.
Mjög góð hæfni í tjáningu í ræðu og riti.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kjarafélag viðskipta- og hagfræðinga hafa gert.
Umsóknarfrestur er til og með 16. nóvember nk. Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi. Sótt er um starfið rafrænt í gegnum ráðningavef ríkisins á island.is/starfatorg.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu enda slagorð stofnunarinnar, samvinna um velferð.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.11.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þórarna Gró Friðjónsdóttir
Tölvupóstur: thorarna.g.fridjonsdottir@hsa.is
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Rekstrarstjóri - Egilsstaðir og Vopnafjörður
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
04.11.2026
Umsóknarfrestur
16.11.2026