Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Sálfræðingur óskast í öflugt teymi á Heilsugæslunni Hamraborg

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-60%

Starf skráð

12.11.2026

Umsóknarfrestur

26.11.2026

Sálfræðingur óskast í öflugt teymi á Heilsugæslunni Hamraborg

Heilsugæslan Hamraborg leitar að metnaðarfullum sálfræðingi sem hefur áhuga á framþróun geðheilbrigðisþjónustu innan heilsugæslunnar. Fram undan er spennandi verkefni þar sem verið er að leggja sterkari áherslu á teymismiðaða nálgun í þjónustu.

Unnið verður eftir nýju þjónustulíkani þar sem þverfagleg teymisvinna og forflokkun erinda til allra heilbrigðisstétta verða í forgrunni. Markmiðið er að nýta sérþekkingu hverrar fagstéttar sem best og beina erindum í réttan farveg frá upphafi, þannig að skjólstæðingar fái þjónustu sem mætir þörfum þeirra.

Sálfræðingur gegnir mikilvægu hlutverki í teyminu með mati á geðrænum vanda, ráðgjöf og meðferð við vægum til miðlungs vanda. Þegar þörf er á umfangsmeiri þjónustu tekur sálfræðingur þátt í að koma málum í viðeigandi farveg. Í starfinu felst tækifæri til að taka virkan þátt innleiðingu á nýju þjónustulíkan og nýta sálfræðilega sérþekkingu til að efla þjónustu við skjólstæðinga.

Um er að ræða er 50-60% starf tímabundið í eitt ár, þó með möguleika á framlengingu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. janúar nk. eða eftir nánari samkomulagi.

Á Heilsugæslunni Hamraborg ríkir frábær starfsandi þar sem áhersla er lögð á góða samvinnu, starfsánægju og vellíðan í starfi. Þar að auki er staðsetningin stöðvarinnar afar góð með greiðum samgöngum úr öllum áttum.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sálfræðiþjónusta fyrir einstaklinga 18 ára og eldri

  • Greining og mat á geðrænum vanda

  • Gagnreynd sálfræðimeðferð og ráðgjöf

  • Þátttaka í þróun og uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu

  • Samstarf við aðrar heilbrigðisstofnanir s.s. Landspítala og félagsþjónustu

  • Önnur tilfallandi verkefni eftir þörfum

Hæfniskröfur

  • Leyfi frá landlækni til að starfa sem sálfræðingur er skilyrði

  • 5 ára starfsreynsla af klínísku starfi er æskileg

  • Reynsla af greiningu og meðferð fullorðinna

  • Þekking og reynsla af gagnreyndum sálfræðiaðferðum

  • Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu

  • Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi

  • Reynsla og áhugi á þverfaglegri teymisvinnu

  • Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum

  • Góð íslensku og enskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni framkvæmdarstjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir sakavottorði.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 50-60%

Umsóknarfrestur er til og með 26.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Huldís Mjöll Sveinsdóttir

Tölvupóstur: huldis.mjoll.sveinsdottir@heilsugaeslan.is

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Sálfræðingur óskast í öflugt teymi á Heilsugæslunni Hamraborg

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-60%

Starf skráð

12.11.2026

Umsóknarfrestur

26.11.2026