Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskólinn á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Lektor við Hjúkrunarfræðideild

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

13.11.2026

Umsóknarfrestur

11.12.2026

Lektor við Hjúkrunarfræðideild

Háskólinn á Akureyri auglýsir lausa 100% stöðu lektors við Hjúkrunarfræðideild Háskólans á Akureyri. Samkvæmt reglum Háskólans á Akureyri skiptast starfsskyldur kennara í þrjá meginþætti: rannsóknir, kennslu og stjórnun.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Kennsla og leiðbeining nemenda á grunn- og meistarastigi á sviði almennrar hjúkrunarfræði og með áherslu á langvinna sjúkdóma.

  • Rannsóknir og fræðilegt starf.

  • Þátttaka í þróun náms og kennslu.

  • Þátttaka í nefndarstörfum og öðrum stjórnunarstörfum innan deildar, sviðs og háskólans eftir því sem við á.

Hæfniskröfur

- Doktorspróf á sviði heilbrigðisvísinda.

- Reynsla af kennslu og rannsóknum á háskólastigi.

- Rannsóknir á sviði sykursýki og annarra langvinnra sjúkdóma er kostur.

- Góð hæfni í mannlegum samskiptum.

- Skipulagshæfni og góð færni í að miðla þekkingu.

- Góð færni í íslensku og ensku, jafnt töluðu sem rituðu máli er nauðsynleg.

Umsókn skal fylgja:

- Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae).

- Staðfest afrit prófskírteina á íslensku eða ensku.

- Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur.

- Greinargerð um fyrirhugaðar rannsóknar- og kennsluáherslur.

- Fræðilegar ritsmíðar sem umsækjandi telur sín bestu verk (allt að fimm ritum). Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skal umsækjandi gera grein fyrir framlagi sínu til verksins.

- Upplýsingar um að minnsta kosti tvo meðmælendur sem hafa má samband við. Æskilegt er að einn þeirra sé næsti yfirmaður umsækjanda í núverandi eða fyrra starfi.

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Háskólinn áskilur sér einnig rétt til að geyma umsóknir í allt að 6 mánuði eftir að dómnefndarálit liggur fyrir.

Háskólinn á Akureyri hvetur öll kyn til að sækja um laus störf.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.

Næsti yfirmaður er forseti Hjúkrunarfræðideildar.

Starfsstöð er á Akureyri gerð er krafa um virka þátttöku í akademísku samfélagi á Norðurlandi.

Æskilegt er að viðkomandi hefji störf sem fyrst en eigi síðar en 1. mars 2027.

Ráðið verður í starfið til fimm ára með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðunum sbr. reglur nr. 726/2023 um ótímabundna ráðningu akademísks starfsfólks við HA. Hægt er að sækja um flýtiframgang í stöðu dósents eða prófessors við ráðningu sbr. 3. gr. 725/2023 reglna um framgang akademísks starfsfólks.

Meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðning í starfið er í samræmi við ákvæði laga nr. 63/2006 um háskóla, laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, reglna nr. 694/2022 fyrir Háskólann á Akureyri og reglna nr. 724/2023 um nýráðningar akademísks starfsfólks við HA.

Grunnnám í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri er fjögur ár til BS prófs. Einnig er í boði innan deildarinnar fagnám fyrir sjúkraliða, klínískar meistaralínur í hjarta-og sykursýki, heilsugæslu og geðhjúkrun ásamt þverfaglegu meistaranámi. Fastráðið starfsfólk deildarinnar eru metnaðarfullur hópur, samsettur af akademísku starfsfólki, verkefnastjórum og aðjúnktum. Einnig koma fjölmargir stundakennarar að kennslu í deildinni, bæði í fræðilegu og klínísku námi.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 11.12.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hafdís Skúladóttir

Tölvupóstur: hafdis@unak.is

Þjónustuaðili

Háskólinn á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Lektor við Hjúkrunarfræðideild

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

13.11.2026

Umsóknarfrestur

11.12.2026