
Þjónustuaðili
Barna- og fjölskyldustofa
Upplýsingar um starf
Starf
Forstöðumaður búsetuúrræðis á höfuðborgarsvæðinu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
04.09.2026
Umsóknarfrestur
14.09.2026
Forstöðumaður búsetuúrræðis á höfuðborgarsvæðinu
Nýtt hlutverk Barna- og fjölskyldustofu felst í að sinna málefnum barna með fjölþættar stuðningsþarfir út frá samkomulagi ríkis og sveitarfélaga. Barna- og fjölskyldustofa leitar því að framsæknum leiðtoga sem hefur þekkingu á málefnum barna með fjölþættar stuðningsþarfir og hæfni til að leiða nýtt sérhæft búsetuúrræði. Um er að ræða búsetuúrræði sem veitir börnum með fjölþættar stuðningsþarfir einstaklingsmiðaðan og faglegan stuðning í öruggu umhverfi. Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra sviðs búsetu og samþættrar þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Dagleg stjórnun og rekstur búsetuúrræðisins.
Ábyrgð á faglegu starfi búsetuúrræðisins.
Leiða þróun faglegs starfs og þjónustu við börn með fjölþættar stuðningsþarfir í samstarfi við fagteymi sviðsins.
Ábyrgð á samskiptum við barnaverndarþjónustu, fjölskyldur og aðra lykilaðila í þjónustu við börnin.
Þátttaka í stefnumótun og nýsköpun innan stofnunarinnar.
Fer með mannaforráð.
Hæfniskröfur
Meistarapróf í sálfræði, félagsráðgjöf, uppeldisfræði eða sambærilegt nám sem nýtist í starfi.
Reynsla af starfi með börnum með fjölþættar stuðningsþarfir og fjölskyldum þeirra.
Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri er kostur.
Þekking á innleiðingu nýrra verkefna kostur.
Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptafærni.
Skipulagshæfileikar og geta til að hafa yfirsýn og umsjón með verkefnum.
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Góð færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku er nauðsynleg, önnur tungumálakunnátta er kostur.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Kostur er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Við úrvinnslu umsókna um störfin gildir mat Barna- og fjölskyldustofu á hæfni og eiginleikum umsækjenda. Vakin er athygli á að stofnunin aflar sjálf upplýsinga úr sakaskrá áður en viðkomandi hefur störf. Barna- og fjölskyldustofa hvetur öll til að sækja um, óháð kyni.
Með umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir þær hæfniskröfur sem gerðar eru. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Allar umsóknir gilda í sex mánuði frá birtingu ef starf losnar að nýju innan þess tíma.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 14.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Guðfinna Jenný Þorsteinsdóttir
Teymisstjóri fagteymis
Tölvupóstur: gudfinna.jenny.thorsteinsdottir@bofs.is
Sími: 5302600

Þjónustuaðili
Barna- og fjölskyldustofa
Upplýsingar um starf
Starf
Forstöðumaður búsetuúrræðis á höfuðborgarsvæðinu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
04.09.2026
Umsóknarfrestur
14.09.2026