Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í rannsóknaþjónustu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

13.10.2026

Umsóknarfrestur

23.10.2026

Sérfræðingur í rannsóknaþjónustu

Laust er til umsóknar fullt starf sérfræðings í rannsóknaþjónustu við Raunvísindastofnun við Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands. Starfið felst í því að leiða og styðja við undirbúnings- og umsóknarferli (e. Pre-Award) alþjóðlegra rannsóknastyrkja á sviði raunvísinda, náttúruvísinda og verkfræði.

Sérfræðingurinn mun starfa náið með rannsakendum og alþjóðlegum rannsóknahópum að þróun og framsetningu samkeppnishæfra styrkumsókna.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ráðgjöf, þróun, skipulag og ritun styrkumsókna (e. Grant Writer) einkum til evrópskra samkeppnissjóða á borð við Horizon Europe

  • Stuðningur og ráðgjöf við rannsakendur og alþjóðlega rannsóknahópa við að móta rannsóknahugmyndir og miðla vísindalegu nýnæmi á skýran hátt

  • Aðstoð við hönnun og ritun vinnupakka og verkefnaáætlana

  • Greining tækifæra í styrkjaumhverfi raunvísinda, náttúruvísinda og verkfræði og ráðgjöf um samræmingu þeirra við stefnu og áherslur stofnunarinnar

  • Stuðningur við uppbyggingu alþjóðlegs rannsóknasamstarfs og tengsla við erlenda samstarfsaðila

  • Skipulagning og umsjón námskeiða, vinnustofa og fræðslufunda um gerð styrkumsókna

Hæfniskröfur

  • Meistarapróf á sviði raunvísinda, náttúruvísinda, verkfræði eða tengdra greina, doktorspróf er kostur

  • Góð akademísk innsýn og hæfni til að setja sig inn í vísindaleg viðfangsefni

  • Gagnrýnin og greinandi hugsun og hæfni til að móta og miðla vísindalegum viðfangsefnum

  • Reynsla úr háskóla- og rannsóknaumhverfi og góður skilningur á starfsháttum, hugtakasmíð og þörfum rannsakenda er kostur

  • Reynsla af undirbúningi, ritun, mótun og rýni stórra alþjóðlegum rannsóknastyrkjum er kostur

  • Reynsla af regluverki, matsviðmiðum og umsóknarferlum evrópskra styrkja, þar á meðal EU Funding & Tenders Portal er kostur

  • Reynsla af samstarfi við fjölbreytta, alþjóðlega rannsóknahópa er kostur

  • Reynsla af námskeiðahaldi, ráðgjöf og leiðbeiningu til sérfræðinga er kostur

  • Góð samskipta- og samstarfshæfni

  • Góð enskukunnátta, í ræðu og ritun fræðilegs texta

  • Íslenskukunnátta í ræðu og riti, er kostur

  • Skipulagshæfni, sjálfstæði og þjónustulund

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Ferilskrá

  • Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins

  • Afrit af prófskírteinum

  • Upplýsingar um umsagnaraðila

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir í grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 23.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hildur Kristmundsdóttir

Forstöðumaður Raunvísindastofnunar

Tölvupóstur: hildurk@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í rannsóknaþjónustu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

13.10.2026

Umsóknarfrestur

23.10.2026