
Þjónustuaðili
Náttúrufræðistofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í vistgerðakortlagningu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
20.10.2026
Umsóknarfrestur
30.10.2026
Sérfræðingur í vistgerðakortlagningu
Náttúrufræðistofnun auglýsir laust tímabundið fullt starf sérfræðings á grasafræðisviði til að taka þátt í kortlagningu vistgerða landsins. Starfið felur í sér fjölbreytta og umfangsmikla vettvangsvinnu ásamt vinnslu landupplýsinga í nánu samstarfi við aðra sérfræðinga stofnunarinnar.
Sérfræðingurinn tekur þátt í undirbúningi og framkvæmd gróðurmælinga, skráningu plantna og umhverfisaðstæðna og gerð og uppfærslu vistgerðakorta. Starfið hentar einstaklingi sem vill sameina vettvangsvinnu og kortagerð.
Starfsstöð getur verið á Akranesi, Akureyri eða í Garðabæ.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þátttaka í skipulagningu, undirbúningi og framkvæmd vettvangsvinnu.
Gróðurmælingar, meðal annars sniðmælingar, greining og skráning tegunda æðplantna og skráning upplýsinga um vistgerðir og umhverfisaðstæður.
Söfnun staðsetningargagna og viðmiðunarpunkta til kortlagningar og sannprófunar vistgerðakorta.
Vinnsla landupplýsinga í QGIS með hliðsjón af vettvangsathugunum, loftmyndum, gervitunglamyndum og niðurstöðum annarra sérfræðinga.
Gerð og uppfærsla vistgerðakorta
Gæðaeftirlit með vettvangsgögnum, landupplýsingum og kortum.
Frágangur korta, framsetning niðurstaða og þátttaka í skýrslugerð.
Önnur tilfallandi verkefni á fagsviðinu í samráði við yfirmann.
Hæfniskröfur
Meistaragráða í líffræði, vistfræði eða skyldum greinum
Marktæk reynsla af gróðurrannsóknum og vettvangsvinnu.
Haldgóð þekking á íslenskri flóru.
Færni og reynsla af notkun QGIS og vinnslu landupplýsinga.
Nákvæmni í skráningu, meðferð og yfirferð gagna.
Góð íslensku- og/eða enskukunnátta í ræðu og riti.
Sjálfstæði í störfum og skipulögð vinnubrögð.
Lipurð í mannlegum samskiptum og góð samstarfshæfni.
Gild ökuréttindi og hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn
Ferilskrá.
Staðfest afrit prófskírteina.
Upplýsingar um umsagnaraðila.
Stutt kynningarbréf þar sem áhuga á starfinu er lýst og gerð grein fyrir því hvernig menntun og reynsla umsækjanda nýtist í auglýstum starfsþáttum.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um niðurstöðu þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Öll kyn eru hvött til að sækja um störf hjá Náttúrufræðistofnun í samræmi við jafnréttisáætlun og jafnlaunastefnu stofnunarinnar.
Um Náttúrufræðistofnun
Hjá Náttúrufræðistofnun starfa tæplega 80 manns við rannsóknir, kortlagningu og vöktun á náttúru landsins. Starfsandi á stofnuninni er góður og heimilislegur, þar sem leitast er við að bjóða fjölskylduvænan vinnustað og heilsueflandi vinnuumhverfi. Við ráðningar í störf hjá Náttúrufræðistofnun er tekið mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar.
Starfsstöðvar Náttúrufræðistofnunar eru sex, í Garðabæ, á Akranesi, á Breiðdalsvík, í Mývatnssveit, á Raufarhöfn og á Akureyri.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.10.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Náttúrufræðistofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í vistgerðakortlagningu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
20.10.2026
Umsóknarfrestur
30.10.2026