
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðilæknir í bráðalækningum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
15.09.2026
Umsóknarfrestur
25.09.2026
Sérfræðilæknir í bráðalækningum
Laus er staða sérfræðilæknis með sérhæfingu í bráðalækningum á bráðadeild Landspítala. Bráðadeildin býður upp á líflegt og krefjandi starfsumhverfi og mikil tækifæri til starfsþróunar. Áhersla er lögð á góða þjónustu, virka teymisvinnu og stöðugar umbætur í þágu sjúklinga.
Starfshlutfall er 50-100% og er starfið laust nú þegar eða skv. nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Móttaka og meðferð sjúklinga við bráð veikindi eða slys
Þátttaka í kennslu, umbótaverkefnum og vísindavinnu í samvinnu við yfirlækni
Önnur verkefni í samráði við yfirlækni
Hæfniskröfur
Íslenskt sérfræðileyfi í bráðalækningum eða öðrum sérgreinum sem nýtast við störf á bráðadeild
Reynsla í kennslu og vísindavinnu
Hæfni til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði
Hæfni og geta til að vinna í teymi
Samskiptahæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.3 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
Fyrri störf, menntun og hæfni
Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum
Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed
Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir,
Tungumálahæfni: íslenska 5/5, enska 4/5
Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 25.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Mikael Smári Mikaelsson
Tölvupóstur: mikaelsm@landspitali.is
Sigrún Eyjólfsdóttir
Tölvupóstur: sigruney@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðilæknir í bráðalækningum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
15.09.2026
Umsóknarfrestur
25.09.2026