Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Rannsóknastofa í lífeðlisfræði, Sjúkrahúsið á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
28.08.2026
Umsóknarfrestur
15.09.2026
Rannsóknastofa í lífeðlisfræði, Sjúkrahúsið á Akureyri
Laus er til umsóknar 100% staða starfsmanns á Rannsóknastofu í lífeðlisfræði á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Staðan er laus nú þegar eða eftir samkomulagi. Næsti yfirmaður er Guðjón Kristjánsson, forstöðulæknir lyflækninga.
Helstu verkefni og ábyrgð
Í starfinu felst fjölbreytt vinna við þjónustu kæfisvefnsvéla auk margvíslegra lífeðlisfræðilegra rannsókna s.s. hjarta-, lungna-, heila- og svefnrannsókna af ýmsum toga.
Hæfniskröfur
Æskilegt er að umsækjandi hafi menntun og starfsréttindi sem lífeindafræðingur en einnig kemur til greina að ráða í starfið einstakling með heilbrigðismenntun eða tæknimenntun á heilbrigðissviði sem nýtist í starfinu (s.s. líftækni, líffræðing, hjúkrunarfræðing eða sjúkraliða). Auk þekkingar og starfsreynslu er lögð áhersla á faglegan metnað, hæfileika til samvinnu og samskipta og að geta starfað sjálfstætt. Mjög góð tækni- og tölvufærni er skilyrði.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag lífeindafræðinga hafa gert.
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Rannsóknastofa í lífeðlisfræði, Sjúkrahúsið á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
28.08.2026
Umsóknarfrestur
15.09.2026