Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðarmaður á skólabúi

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

05.10.2026

Umsóknarfrestur

15.10.2026

Aðstoðarmaður á skólabúi

Laust er til umsóknar fullt starf aðstoðarmanns á skólabúi við Hestafræðideild Háskóla Íslands á Hólum. Starfsstöð er við Háskóla Íslands á Hólum. Starfið er unnið á dagvinnutíma, auk þess sem gert er ráð fyrir vinnu þriðju hverja helgi. Einnig er skipulögð bakvakt.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umhirða hesta og önnur bústörf, þ.m.t. þrif og gegningar

  • Eftirlit með umgengni á hesthúsasvæði og skólabúi

  • Almennt viðhald húsa og tækja á skólabúi

  • Eftirlit með velferð og heilsu hrossa

  • Leiðsögn um öryggisreglur, umgengni og hirðingu hrossa

Hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi, svo sem í búfræði, hestafræði eða í iðngreinum, er kostur

  • Reynsla af umhirðu hesta og almennum bústörfum er æskileg

  • Reynsla af landbúnaðarstörfum, starfi við smíðar eða af sambærilegum verkefnum er kostur

  • Ökuréttindi, aukin ökuréttindi og reynsla af notkun landbúnaðartækja er kostur

  • Grunnfærni í íslensku og ensku

  • Skipulagshæfni og hæfni í samvinnu og mannlegum samskiptum

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Ferilskrá

  • Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins

  • Afrit af prófskírteinum

  • Upplýsingar um umsagnaraðila

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 15.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Auður Inga Ingimarsdóttir

Tölvupóstur: audinga@hi.is

Víkingur Þór Gunnarsson

Tölvupóstur: vikingur@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðarmaður á skólabúi

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

05.10.2026

Umsóknarfrestur

15.10.2026