Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðilæknir í lyflækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

40-50%

Starf skráð

10.11.2026

Umsóknarfrestur

23.11.2026

Sérfræðilæknir í lyflækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri

Sjúkrahúsið á Akureyri óskar eftir að ráða sérfræðilækni í lyflækningum við lyflækningadeild. Um er að ræða 40-50% ótímabundna stöðu. Staðan er laus nú þegar eða eftir samkomulagi.

Af hverju Sjúkrahúsið á Akureyri?

  • Góð starfsaðstaða og sterk fagleg samvinna

  • Tækifæri til kennslu og þróunar

  • Lífsgæði og samfélag, , stutt í alla nærþjónustu og stutt í og úr vinnu. Góðir möguleikar til tómstunda og íþróttaiðkunar og öflugt menningarlíf. Fjölskylduvænt samfélag og forgangur á leikskóla.

  • Náttúruperla með frábærum möguleikum til útivistar

  • Jafnvægi milli vinnu og einkalífs

  • Sterk liðsheild.

Á lyflækningadeildinni eru starfrækt tvö öflug teymi sérfræðilæknis og 2-3ja unglækna. Góðir möguleikar á eftirliti og uppvinnslu á almennri og sérhæfðum göngudeildum og bráðadagdeild, ásamt aðstöðu fyrir læknisfræðileg inngrip, rannsóknir og meðferð á dagdeild.

Komdu í lið með okkur og finndu jafnvægið fyrir norðan!

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Hefðbundin vinna í lyflækningum á legudeild og göngudeild, auk ráðgjafar fyrir aðrar einingar sjúkrahússins.

  • Þátttaka í vöktum

  • Kennsla og þjálfun heilbrigðisstarfsfólks og unglækna

  • Möguleiki á þátttöku í rannsóknarvinnu, gæðastarfi og þróunarverkefnum.

Hæfniskröfur

  • Fullgilt íslenskt lækningaleyfi og fullgild réttindi í almennum lyflækningum

  • Undirsérgrein er æskileg t.d. í smitsjúkdómum eða gigtlækningum

  • Hæfni til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði

  • Hæfni og geta til að vinna í teymi

  • Samskiptahæfni og lipurð í mannlegum samskiptum

  • Við ráðningu verður lögð áhersla á faglega þekkingu og reynslu ásamt hæfileikum á sviði samskipta, samvinnu og sjálfstæðra vinnubragða

  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. VIð hvetjum fólk af öllum kynjum til þess að sækja um starfið. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er 40-50%

Umsóknarfrestur er til og með 23.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Guðni Arnar Guðnason

forstöðulæknir

Tölvupóstur: gag0317@sak.is

Sími: 463-0100

Kristjana Kristjánsdóttir

deidlarstjóri mannauðsdeildar

Tölvupóstur: kristjanak@sak.is

Sími: 463-0100

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðilæknir í lyflækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

40-50%

Starf skráð

10.11.2026

Umsóknarfrestur

23.11.2026