
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur, heilsugæslu HVE Borgarnesi
Staðsetning
Vesturland
Starfshlutfall
-90%
Starf skráð
14.09.2026
Umsóknarfrestur
28.09.2026
Hjúkrunarfræðingur, heilsugæslu HVE Borgarnesi
Hjúkrunarfræðingur óskast á heilsugæslustöðina í Borgarnesi. Ákjósanlegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. janúar 2027.
Á heilsugæslunni er lagt upp með mikla teymisvinnu, þar starfa hjúkrunarfræðingar ásamt sjúkraliðum, læknum, sjúkraflutningamönnum, heilbrigðisgagnafræðingi ofl.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ber ábyrgð á að skipuleggja og framkvæma hjúkrun skjólstæðinga á faglegum forsendum, í samræmi við lög um heilbrigðisþjónustu og stefnu HVE. Vinnur undir stjórn yfirhjúkrunarfræðings og ber faglega, siðferðislega og lagalega ábyrgð á störfum sínum skv. Siðareglum hjúkrunarfræðinga. Ber ábyrgð á að framfylgja reglum um hreinlæti og smitgát á stofnuninni. Sýnir faglegan metnað og færni og leitast við að viðhalda þekkingu sinni og stuðlar að framþróun í hjúkrun. Þekkir og vinnur eftir Lögum um heilbrigðisstarfsmenn 34/2012.
Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni á heilsugæslu, t.d. skólahjúkrun, lífsstílsmóttöku og önnur störf sem tilheyra hjúkrun á heilsugæslustöðinni.
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi.
Diplomanám í heilsugæsluhjúkrun er kostur
Góð íslenskukunnátta.
Hæfni í mannlegum samkiptum.
Sjálfstæði í vinnubrögðum.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Með umsókn skal fylgja
Staðfest afrit af hjúkrunarleyfi
Staðfesting á námi, námskeiðum og námi sem nýtist í starfi.
Upplýsingar um ónæmisaðgerðir
Ferilskrá.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Sótt er um á starfatorg.is.
Starfshlutfall er -90%
Umsóknarfrestur er til og með 28.09.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur, heilsugæslu HVE Borgarnesi
Staðsetning
Vesturland
Starfshlutfall
-90%
Starf skráð
14.09.2026
Umsóknarfrestur
28.09.2026