Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á bráðalegudeild lyndisraskana

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

29.10.2026

Umsóknarfrestur

24.11.2026

Hjúkrunarfræðingur á bráðalegudeild lyndisraskana

Bráðalegudeild lyndisraskana auglýsir laust til umsóknar starf hjúkrunarfræðings. Starfshlutfall og vinnufyrirkomulag er skv. samkomulagi og er starfið laust frá 1. janúar 2027 eða eftir nánara samkomulagi.

Við leitum eftir hjúkrunarfræðingi með framúrskarandi skipulagshæfni, færni í samskiptum, skapandi hugsun og einlægan áhuga á geðhjúkrun. Boðið er uppá einstaklingsmiðaða aðlögun undir leiðsögn reyndra fagaðila.

Bráðalegudeild lyndisraskana er 17 rúma og sinnir móttöku, greiningu og meðferð sjúklinga með alvarlegar og bráðar geðraskanir. Deildin sérhæfir sig m.a. í meðferð sjúklinga með átraskanir og í greiningu og meðferð á konum með alvarlegar geðraskanir og/ eða ef grunur leikur á tengslaröskun á meðgöngu og eftir fæðingu. Starfsemi deildarinnar er í stöðugri þróun og umbótastarf er mikið. Á deildinni er góður starfsandi, frábært samstarfsfólk og boðið er upp á tækifæri til að þróa faglega sérþekkingu og hæfni í geðhjúkrun.

Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í formi starfsþróunarárs Landspítala og Geðþjónusta býður einnig sérhæfða þjálfun í geðhjúkrun.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Starfar í fjölfaglegum teymum við umönnun og meðferð einstaklinga með bráð geðræn einkenni

  • Ber ábyrgð á meðferð og öryggisþáttum, samkvæmt starfslýsingu

  • Skipuleggur og forgangsraðar störfum sínum með tilliti til þarfa sjúklinga

  • Hvetur, leiðbeinir og veitir víðtækan stuðning við nema og ófaglært starfsfólk

  • Tekur þátt í umbótastarfi og þróun þjónustunnar

  • Stuðlar að góðum samstarfsanda

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Einlægur áhugi á hjúkrun fólks með geðraskanir, reynsla af geðhjúkrun er kostur

  • Áhugi á stuðningi við mæður með ungabörn

  • Áhugi á meðferðarstarfi vegna átröskunar

  • Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi

  • Jákvæðni, þolinmæði og sveigjanleiki

  • Mjög mikil samskiptahæfni

  • Íslenskukunnátta áskilin

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna

Tungumál íslenska 4/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 60-100%

Umsóknarfrestur er til og með 24.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Guðrún Edda Hauksdóttir

Tölvupóstur: gudruhau@landspitali.is

Margrét Yrsa Ólafsdóttir

Tölvupóstur: margrety@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á bráðalegudeild lyndisraskana

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

29.10.2026

Umsóknarfrestur

24.11.2026