Þjónustuaðili
Ríkislögmaður
Upplýsingar um starf
Starf
Lögmaður við embætti ríkislögmanns
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
24.09.2026
Umsóknarfrestur
05.10.2026
Lögmaður við embætti ríkislögmanns
Embætti ríkislögmanns auglýsir laust til umsóknar starf lögmanns með málflutningsréttindi í héraði. Um er að ræða áhugavert og fjölbreytt starf í krefjandi starfsumhverfi þar sem reynir á öguð vinnubrögð, ábyrgð og sjálfstæði.
Helstu verkefni og ábyrgð
Uppgjör bótakrafna sem beint er að ríkissjóði.
Rekstur mála fyrir héraðsdómstólum og í Félagsdómi, þ.m.t. ritun greinargerða og munnlegur málflutningur.
Samskipti við stjórnvöld, stofnanir, lögmenn og einstaklinga.
Hæfniskröfur
Fullnaðarpróf í lögfræði (embættis- eða meistarapróf). Önnur viðbótarmenntun er kostur.
Málflutningsréttindi fyrir héraðsdómstólum.
Góð kunnátta í skaðabótarétti, stjórnsýslurétti og starfsmannarétti.
Reynsla af störfum innan stjórnsýslunnar eða á lögmannsstofu er kostur.
Reynsla og þekking af gerð samninga er kostur.
Sveigjanleiki, samstarfshæfni, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á bæði íslensku og ensku.
Kunnátta í Norðurlandatungumáli er kostur.
Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum.
Reynsla af teymisvinnu er kostur.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert.
Embætti ríkislögmanns er sjálfstæð stofnun sem heyrir undir forsætisráðuneytið. Embættið rekur dómsmál fyrir ríkið og stofnanir þess fyrir innlendum dómstólum og sinnir einnig málflutningi fyrir Mannréttindadómstól Evrópu og EFTA-dómstólnum. Þá fer ríkislögmaður með uppgjör bótakrafna sem beint er að ríkinu. Nánari upplýsingar um verkefni og starfsskyldur ríkislögmanns má finna í lögum nr. 51/1985 um ríkislögmann.
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Um er að ræða fullt starf. Áhugasamir einstaklingar eru hvattir til að sækja um starfið óháð uppruna og kyni.
Umsóknarfrestur er til og með 5. október 2026. Umsókn skal skila rafrænt á postur@rlm.is. Með umsókn skal fylgja afrit af málflutningsréttindum, ítarleg starfsferilskrá, þar sem fram koma upplýsingar um menntun og fyrri störf, ásamt kynningarbréfi með upplýsingum um ástæðu umsóknar og hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa.
Nánari upplýsingar veitir Fanney Rós Þorsteinsdóttir ríkislögmaður í síma 5451300 eða í gegnum netfangið postur@rlm.is.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 05.10.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Ríkislögmaður
Upplýsingar um starf
Starf
Lögmaður við embætti ríkislögmanns
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
24.09.2026
Umsóknarfrestur
05.10.2026