
Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Talmeinafræðingar - Heyrnar og talmeinastöð HH
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
70-100%
Starf skráð
12.11.2026
Umsóknarfrestur
26.11.2026
Talmeinafræðingar - Heyrnar og talmeinastöð HH
Vilt þú taka þátt í að þróa nýtt verkefni talmeinafræðinga í skólaþjónustu?
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að reyndum talmeinafræðingum til starfa hjá Heyrnar- og talmeinastöð í spennandi þróunarverkefni sem þegar er hafið. Markmið verkefnisins er að þróa verklag sem miðar að því að veita börnum talþjálfun í sínu nærumhverfi. Starfað er í þverfaglegum teymum í nokkrum grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða tímabundið tilraunaverkefni sem áætlað er að ljúki í ágúst 2028.
Heyrnar og talmeinastöð HH er miðstöð þekkingar í heyrnar og talmeinum á Íslandi sem veitir þjónustu á landsvísu. Hlutverk HT er að þjóna þeim sem eru heyrnarskertir, heyrnarlausir eða með mál og talmein.
Um er að ræða 70-100% tímabundið starf og í boði eru nokkrar stöður talmeinafræðinga. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Til greina kemur að ráða áhugasaman reynsluminni talmeinafræðing sem starfar undir handleiðslu reynslumeiri talmeinafræðings.
Helstu verkefni og ábyrgð
Talmeinafræðingur sinnir meðferð tal- og málmeina innan þeirra grunnskóla sem verkefnið nær til í samvinnu við aðra fagaðila. Hann ber ábyrgð á að veita skjólstæðingum sínum bestu meðferð og þjónustu sem í boði er á hverjum tíma. Talmeinafræðingur mun stjórna og skipuleggja þjónustu og meðferð innan sinnar starfsstöðvar auk þess að meta árangur meðferðar. Hann er leiðandi í gagnreyndum aðferðum og ber ábyrgð á að innleiða nýjungar í meðferð og þjónustu á starfstöð.
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi sem talmeinafræðingur
Æskilegt er að viðkomandi hafi lokið 6 mánaða verklegri þjálfun undir handleiðslu reynds talmeinafræðings en einnig er handleiðsla í boði
Sérþekking á málþroska barna/unglinga
Sérþekking á málþroskaröskun DLD æskileg
Reynsla og áhugi á talþjálfun og almennri meðferð talmeina
Góð þekking á máltöku barna með dæmigerðan málþroska, frávikum í málþroska og frávikum í málhljóðamyndun/framburði hljóða
Góð þekking á snemmtækri íhlutun m.t.t. barna með frávik í málþroska
Áhugi á þverfaglegri teymisvinnu
Mjög góð skipulagshæfni, færni í forgangsröðun og sveigjanleiki
Sjálfstæði, frumkvæði og hæfni til að vinna undir álagi
Mjög góð samskiptafærni og hæfni til samstarfs við ólíka fagaðila
Góð tölvukunnátta
Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 70-100%
Umsóknarfrestur er til og með 26.11.2026
Nánari upplýsingar veitir
Svava María Atladóttir
Forstöðumaður
Tölvupóstur: svava.maria.atladottir@heilsugaeslan.is
Sími: 513 6500
Anna Ósk Sigurðardóttir
Talmeinafræðingur
Tölvupóstur: anna.osk.sigurdardottir@heilsugaeslan.is
Sími: 513 6500

Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Talmeinafræðingar - Heyrnar og talmeinastöð HH
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
70-100%
Starf skráð
12.11.2026
Umsóknarfrestur
26.11.2026