Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Fjölbrauta­skóli Suður­nesja

Upplýsingar um starf

Starf

Tómstundafulltrúi við Fjölbrautaskóla Suðurnesja

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

50-75%

Starf skráð

22.10.2026

Umsóknarfrestur

02.11.2026

Tómstundafulltrúi við Fjölbrautaskóla Suðurnesja

Fjölbrautaskóli Suðurnesja óskar að ráða Tómstundafulltrúa í 50 - 75% starf. Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf í síðasta lagi 1. janúar 2027 og er ráðið í stöðuna út skólaárið með möguleika á framlengingu.Laun erusamkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra hefur gert við viðkomandi stéttarfélag. Um er að ræða nýlegt starf þar sem viðkomandi á að vinna með og aðstoða nemendur skólans við félagsstarfið og vinna jafnframt að forvörnum innan skólans í samráði við stjórnendur.

Helstu verkefni og ábyrgð

Meðal verkefna er:

  • Hvetur stjórn nemendafélagsins til góðra starfa í þágu nemenda, vinna með þeim að því að byggja upp og viðhalda öflugu félagslífi.

  • Skipuleggur viðburði á vegum NFS í samstarfi við nemendur og er viðstaddur alla slíka viðburði.

  • Skipuleggur dansleiki og gæslu á dansleikjum nemenda og hefur yfirumsjón með eftirliti og eftirfylgni mála er upp kunna að koma í tengslum við dansleikjahaldið.

  • Fylgir nemendum á ýmsar uppákomur á vegum nemendafélagsins sem haldnar eru utan skólans, eftir því sem þurfa þykir.

  • Hvetur nemendur til þátttöku í viðburðum á vegum NFS og til þátttöku í klúbbum á vegum NFS.

  • Skipuleggur og heldur utanum forvarnastarf á vegum skólans.

  • Er tengiliður NFS við stjórnendur skólans

  • Er virkur í samstarfi, ræktar góð tengsl við annað fagfólk í nærsamfélagi skólans og er með augun opin fyrir nýjum tækifærum á sviði félagslífs nemenda.

Hæfniskröfur

Áhersla er lögð á menntun á sviði uppeldis-, tómstunda- og félagsmála, auk hæfni í mannlegum samskiptum, jákvæðni og sveigjanleika. Einnig á nákvæm vinnubrögð, góða almenna tölvukunnáttu ásamt góðri færni í íslensku. Mjög góð samskiptahæfni, ríkur samstarfsvilji og viðkomandi þarf að falla að þeim starfsmannahópi sem fyrir er í skólanum.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Viska - stéttarfélag hafa gert.

Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum Starfatorg (www.starfatorg.is) með tilheyrandi fylgigögnum. Í umsókn þurfa að koma fram upplýsingar um menntun (staðfest afrit af prófskírteinum), upplýsingar um fyrri störf og tilgreina skal meðmælendur. Ákvörðun um ráðningu byggir á innsendum gögnum og viðtölum.

Tekið skal fram að skv. 4. mgr. 8. gr. laga framhaldsskóla nr. 92/2008 er óheimilt að ráða einstakling til starfa við framhaldsskóla sem hlotið hefur refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga. Áður en til ráðningar kemur þarf að liggja fyrir hreint sakavottorð.

Á heimasíðu skólans, www.fss.is, má finna frekari upplýsingar og sjá myndir úr skólalífinu.

Starfshlutfall er 50-75%

Umsóknarfrestur er til og með 02.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Guðlaug Málfríður Pálsdóttir

Skólameistari

Tölvupóstur: gudlaug.palsdottir@fss.is

Sími: 421-3100

Guðmundur Grétar Karlsson

Aðstoðarskólameistari

Tölvupóstur: gudmundur.karlsson@fss.is

Sími: 421-3100

Þjónustuaðili

Fjölbrauta­skóli Suður­nesja

Upplýsingar um starf

Starf

Tómstundafulltrúi við Fjölbrautaskóla Suðurnesja

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

50-75%

Starf skráð

22.10.2026

Umsóknarfrestur

02.11.2026