Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Alþingi

Upplýsingar um starf

Starf

Aðallögfræðingur Alþingis

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

31.08.2026

Umsóknarfrestur

14.09.2026

Aðallögfræðingur Alþingis

Skrifstofa Alþingis leitar að öflugum og reynslumiklum aðallögfræðingi með framúrskarandi þekkingu á sviði stjórnskipunar- og stjórnsýsluréttar. Starfið heyrir beint undir skrifstofustjóra Alþingis og í því felst leiðandi sérfræðiráðgjöf á sviði lögfræði fyrir forystu þingsins og stjórnendur skrifstofunnar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fagleg forysta og lögfræðileg ráðgjöf fyrir forseta Alþingis, forsætisnefnd, skrifstofustjóra og framkvæmdastjórn

  • Lögfræðileg greining og álitsgerðir

  • Ráðgjöf um lagasetningu sem varðar starfsemi Alþingis og stofnanir þess

  • Rannsóknarstörf á sviði stjórnskipunarréttar, einkum varðandi starfsemi þjóðþinga

  • Virk þátttaka í umbóta- og stefnumótunarstarfi innan skrifstofunnar

Hæfniskröfur

  • Meistarapróf eða embættispróf í lögfræði, viðbótarmenntun er kostur

  • Mjög góð þekking á stjórnskipunar- og stjórnsýslurétti

  • Víðtæk þekking og reynsla af störfum innan opinberrar stjórnsýslu

  • Afburða samskiptafærni, jákvæðni og lipurð

  • Mikil greiningarhæfni og færni til að miðla flóknum álitaefnum á skýran og aðgengilegan hátt

  • Góð færni í ritun lögfræðilegra texta, s.s. í formi minnisblaða og greinargerða, á íslensku og ensku. Þekking á norðurlandamáli er kostur

  • Þekking á starfsemi þjóðþinga er kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem forseti Alþingis og Félag starfsmanna Alþingis hafa gert.

Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni til að gegna starfinu ásamt dæmum um lögfræðilegan texta sem umsækjandi hefur samið eða átt þátt í að semja. Einnig skal leggja fram staðfestingu á prófgráðum og upplýsingar um umsagnaraðila. Starfið hentar öllum kynjum og áhugasöm eru hvött til að sækja um. Gildi skrifstofu Alþingis eru fagmennska, virðing og framsækni.

Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Eingöngu er tekið við rafrænum umsóknum í ráðningarkerfi Orra. Nánari upplýsingar um skrifstofu Alþingis má finna á vef þingsins. Nánari upplýsingar um starfið veitir Sverrir Jónsson, skrifstofustjóri Alþingis.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 14.09.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sverrir Jónsson

skrifstofustjóri Alþingis

Tölvupóstur: sverrir.jonsson@althingi.is

Sími: 563-0500

Þjónustuaðili

Alþingi

Upplýsingar um starf

Starf

Aðallögfræðingur Alþingis

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

31.08.2026

Umsóknarfrestur

14.09.2026