
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Barnasálfræðingur hjá HSN
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
02.09.2026
Umsóknarfrestur
14.09.2026
Barnasálfræðingur hjá HSN
Vilt þú taka þátt í að móta og þróa geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og ungmenni á Norðurlandi?
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) leitar að metnaðarfullum og drífandi barnasálfræðingi sem hefur brennandi áhuga á að styðja við börn og ungmenni. Starfshlutfall er 80-100% eða samkvæmt samkomulagi. Hægt er að sinna starfinu frá öllum megin starfstöðvum HSN og/eða í fjarvinnu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.
HSN veitir börnum og ungmennum upp að 18 ára aldri 1. og 2. línu þjónustu þar sem börnum með vægan til miðlungsalvarlegan vanda er sinnt í sálfræðiteyminu og þverfaglegt geðheilsuteymi barna sinnir börnum með flóknari vanda. Lögð er áhersla á gagnreynt verklag, bæði í einstaklingsmeðferð og foreldramiðaðri meðferð.
Spennandi tímar eru framundan þar sem þjónustan er í umbreytingarferli í samræmi við áætlanir Heilbrigðisráðuneytisins (sjá Stöðuskýrslu um umbreytingar í geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn). Jafnframt er að hefjast metnaðarfullt átaksverkefni sem miðar að því að efla greiningu og meðferð barna með ADHD einkenni að lokinni frumgreiningu. Hér gefst einstakt tækifæri til að hafa áhrif á uppbyggingu og framtíð þjónustunnar.
Við leitum að sálfræðingi sem hefur áhuga á klínísku starfi, vill þróast í faginu og leggja sitt af mörkum til að bæta geðheilsu barna og fjölskyldna. Hjá HSN færð þú tækifæri til að starfa í öflugu þverfaglegu teymi þar sem fagmennska, samstarf og gagnreyndar meðferðaraðferðir eru í forgrunni. Við leggjum jafnframt ríka áherslu á faglega þróun starfsfólks og bjóðum upp á reglubundna og vandaða handleiðslu sem styður við faglegan vöxt, öryggi í starfi og gæði þjónustunnar.
Sálfræðingar af öllum kynjum, reynslumiklir jafnt sem reynsluminni eru hvattir til þess að sækja um starfið. Sömuleiðis eru sálfræðingar með reynslu af meðferð barna sem og fullorðinna hvattir til að sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð
Greining vægra til miðlungsalvarlegra einkenna kvíða, þunglyndis og áfallastreituröskunar hjá börnum og ungmennum að 18 ára aldri
Meðferð vægra til miðlungsalvarlegra einkenna kvíða, þunglyndis og áfallastreituröskunar hjá börnum og ungmennum að 18 ára aldri
Uppeldisráðgjöf til foreldra
Þátttaka í frekari uppbyggingu gagnreyndrar geðheilbrigðisþjónustu við börn á þjónustusvæði HSN
Samstarf við aðrar fagstéttir og þjónustuveitendur
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Sálfræðingur með löggildingu og réttindi til starfa á Íslandi
Frumkvæði, áhugi og metnaður fyrir því að veita árangursríka, gagnreynda meðferð
Þekking og reynsla af notkun sálfræðilegra matstækja og greiningu algengustu geðraskana barna og ungmenna er kostur
Þekking á greiningum taugaþroskavanda er kostur
Þekking á gagnreyndum meðferðarúrræðum við geðröskunum barna og ungmenna er kostur, bæði varðandi einstaklings- hóp- og/eða foreldramiðaða meðferð
Lausnamiðuð hugsun, góð samskipta- og samstarfshæfni, jákvæðni og hlýtt viðmót
Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
Gott orðspor, hreint sakavottorð og ökuleyfi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.
Með umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá auk kynningarbréfs á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið. Með umsókn skal fylgja afrit af prófskírteini.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út.
HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntunar á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.
Starfssvæði HSN nær frá Blönduósi í vestri til Þórshafnar í austri og þjónustan er veitt á fjölmörgum starfsstöðvum víðs vegar um Norðurland. Umfangsmikil starfsemi stofnunarinnar og öflugt samstarf fagfólks á milli starfsstöðva skapa fjölbreytt og spennandi starfsumhverfi þar sem tækifæri gefast til faglegrar þróunar og þátttöku í áframhaldandi uppbyggingu heilbrigðisþjónustu í landshlutanum.
Gildi okkar eru Fagmennska - Samvinna - Virðing.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 14.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Alice Harpa Björgvinsdóttir
forstöðumaður sálfélagslegra þjónustu
Tölvupóstur: alice.harpa.bjorgvinsdottir@hsn.is
Sími: 432 4970

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Barnasálfræðingur hjá HSN
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
02.09.2026
Umsóknarfrestur
14.09.2026