
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Lífeindafræðingur eða náttúrufræðingur á hjartarannsóknarstofu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
06.11.2026
Umsóknarfrestur
19.11.2026
Lífeindafræðingur eða náttúrufræðingur á hjartarannsóknarstofu
Laust er til umsóknar starf lífeindafræðings eða náttúrfræðings á hjartarannsóknarstofu Landspítala. Á einingunni starfar 25 manna samhentur hópur í þverfaglegulegu teymi og í nánu samstarfi við aðra faghópa.
Starfsemi hjartarannsóknastofu er fjölbreytt og enginn dagur er eins. Við þjónustum sjúklinga sem ýmist eru inniliggjandi eða koma frá göngudeildum. Vaxandi þáttur starfsemi tengist fjarþjónustu við skjólstæðinga í gangráðs- og bjargráðseftirliti.
Starfshlutfall er 80-100%, unnið er í dagvinnu. Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Ráðið er í starfið frá 1. desember 2026 eða samkvæmt nánara samkomulagi. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun.
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinna við framkvæmd áreynsluprófa, borðveltiprófa, öndunarprófa og hjartalínurit
Úrlestur hjartarita, gangráðs- og bjargráðseftirlit, bæði stað- og fjarvöktun
Úrvinnsla og túlkun niðurstaðna í samvinnu við hjartalækna
Þátttaka í öðrum verkefnum á hjartarannsókn eftir nánari ákvörðun stjórnanda
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi lífeindafræðings eða náttúrufræðings
Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum
Hæfni í teymisvinnu
Reynsla af tengdri starfsemi er kostur
Góð íslenskukunnátta skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, náttúrufræðingur, lífeindafræðingur, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 3/5
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 19.11.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Lífeindafræðingur eða náttúrufræðingur á hjartarannsóknarstofu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
06.11.2026
Umsóknarfrestur
19.11.2026