Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunardeildarstjóri sjúkradeildar í Vestmannaeyjum

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

20.10.2026

Umsóknarfrestur

02.11.2026

Hjúkrunardeildarstjóri sjúkradeildar í Vestmannaeyjum

Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) óskar eftir að ráða hjúkrunardeildarstjóra á sjúkradeild í Vestmannaeyjum.

HSU leitar að metnaðarfullum og öflugum hjúkrunarfræðingi til að leiða fjölbreytt og krefjandi starf hjúkrunardeildarstjóra á sjúkradeild í Vestmannaeyjum. Sjúkradeildin er blönduð 18 rúma deild sem sinnir hjúkrun flestra sjúklingahópa, þar af eru átta hjúkrunarrými og eitt hvíldarrými. Einnig er rekin dagdeild lyfjagjafa innan deildarinnar. Á deildinni starfar samhent teymi hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og annars starfsfólks.

Hjúkrunardeildarstjóri ber faglega, mannauðs- og rekstrarlega ábyrgð á deildinni og heyrir undir framkvæmdastjóra hjúkrunar. Hjúkrunardeildarstjóri er hluti af stjórendateymi HSU og gegnir mikluvægu hlutverki í að efla samstarf og samræmingu þvert á stofnun. Lögð er áhersla á virka samvinnu við stjórnendur og starfsfólk innan HSU til að stuðla að samfelldri og öflugri þjónustu um allt þjónustusvæði HSU.

Helstu verkefni og ábyrgð

Fagleg forysta um hjúkrun og þjónusta við skjólstæðinga deildarinnar

Yfirsýn og mótun skipulags sjúkradeildarinnar

Hjúkrunardeildarstjóri gerir áætlanir um starfsemi á deildinni ásamt öðrum stjórnendum

Skipuleggur starf hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og annarra starfsmanna sem undir hann heyra

Hann tekur þátt í kennslu og þjálfun nemenda og starfsmanna stofnunarinnar og vinnur að framþróun gæðamála, rannsókna og fræðistarfa

Þátttaka í klínísku starfi

Þverfagleg teymisvinna innan stofnunarinnar

Hæfniskröfur

Jákvætt viðhorf og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum auk leiðtogahæfileika

Brennandi áhugi á þróun þjónustu við skjólstæðinga deildarinnar

Farsæl stjórnunarreynsla æskileg

Umsækjendur skulu hafa lokið hjúkrunarmenntun frá viðurkenndri menntastofnun og hafa starfsleyfi Landlæknisembættisins

Framhaldsnám í hjúkrun og/eða stjórnun æskileg

Hæfni í tjáningu bæði í ræðu og riti

Frumkvæði, áreiðanleiki, drifkraftur, þrautsegja og árangursmiðað viðhorf nauðsynleg

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

HSU veitir heilsugæslu-, sjúkrahúss- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri. Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á að veita hverju sinni.

Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.

Starfið veitist frá og með 1. desember 2026 eða eftir samkomulagi.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 02.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ingibjörg Rafnsdóttir

Tölvupóstur: ingibjorg.rafnsdottir@hsu.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunardeildarstjóri sjúkradeildar í Vestmannaeyjum

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

20.10.2026

Umsóknarfrestur

02.11.2026