Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Næringarfræðingur á næringarstofu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

03.11.2026

Umsóknarfrestur

13.11.2026

Næringarfræðingur á næringarstofu

Næringarstofa Landspítala auglýsir starf næringarfræðings.

Við leitum að öflugum og metnaðarfullum næringarfræðingi til að sinna umsjón með fæðuþolsprófum og veita klíníska næringarmeðferð á göngu- og legudeildum Landspítala. Um er að ræða fjölbreytt og sérhæft starf þar sem reynir á fagþekkingu, skipulagshæfni og náið samstarf við aðrar heilbrigðisstéttir. Starfshlutfall er 50%, nema að um annað sé samið. Starfið er laust frá 1. desember 2026 eða samkvæmt samkomulagi.

Á næringarstofu starfar öflugur hópur næringarfræðinga í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir á flestum deildum spítalans. Veitt er sérhæfð næringarmeðferð samkvæmt verkferli NCP fyrir sjúklinga á bráða, legu- og göngudeildum Landspítala. Markvisst er unnið að umbótum og framþróun. Öflugt rannsóknarstarf fer fram á næringarstofu í samstarfi við háskóla og stofnanir innanlands og erlendis auk þess sem boðið er upp á starfsþjálfun í klínískri næringarfræði.

Fæðuþolspróf eru mikilvægur þáttur í greiningu fæðuofnæmis og eru framkvæmd á göngudeild ofnæmis A3 og Barnaspítala Hringsins. Undirbúningur fæðuþolsprófanna fer fram í eldhúsi Landspítala í nánu samstarfi við næringarfræðinga eldhússins.

Við leitum að einstaklingi með faglegan metnað og áhuga á fjölbreyttum klínískum verkefnum í krefjandi þverfaglegu starfsumhverfi. Góð skipulags- og samskiptahæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum eru mikilvægir eiginleikar.

Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Undirbúningur og framkvæmd fæðuþolsprófa í samstarfi við göngudeild ofnæmis A3 og Barnaspítala Hringsins

  • Samstarf við næringarfræðinga í eldhúsi Landspítala við undirbúning og útfærslu fæðuþolsprófa

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu og faglegu samstarfi við aðrar heilbrigðisstéttir

  • Umsjón með næringarmeðferð og ráðgjöf fyrir sjúklinga á göngu- og legudeildum Landspítala

  • Gerð fræðsluefnis fyrir sjúklinga og aðstandendur og endurskoðun

  • Þátttaka í faglegu gæðastarfi næringarstofu

  • Leiðsögn nemenda í klínísku námi

Hæfniskröfur

  • Lokið klínísku námi í næringarfræði og íslenskt starfsleyfi sem næringarfræðingur

  • Reynsla af klínískri vinnu í næringarfræði á göngu- og legudeildum spítala er skilyrði

  • Reynsla af undirbúningi og gerð fæðuþolsprófa er æskuleg

  • Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi

  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki

  • Íslenskukunnátta er skilyrði

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra náttúrufræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta.Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, næringarfræðingur, teymisvinna

Tungumálahæfni: íslenska 5/5, enska 4/5

Staðsetning: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík

Starfshlutfall er 50%

Umsóknarfrestur er til og með 13.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Áróra Rós Ingadóttir

Tölvupóstur: aroraros@landspitali.is

Sími: 846-1601

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Næringarfræðingur á næringarstofu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

03.11.2026

Umsóknarfrestur

13.11.2026