
Þjónustuaðili
Árnastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Öryggisverðir í Eddu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
22.09.2026
Umsóknarfrestur
05.10.2026
Öryggisverðir í Eddu
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum er háskólastofnun með sjálfstæðan fjárhag. Hún hefur það hlutverk að vinna að rannsóknum og miðla þekkingu á íslenskum fræðum ásamt því að varðveita og efla þau söfn sem henni eru falin.
Við leitum að áreiðanlegum og heiðarlegum aðila í starf öryggisvarðar í Eddu. Hlutverk öryggisvarða er að tryggja öryggi gagna með áherslu á handrit og önnur frumgögn. Öryggisverðir sinna einnig öryggiseftirliti í húsinu og fylgjast með húsumsjónar-og eftirlitskerfum.
Við ráðningar í störf hjá Stofnun Árna Magnússonar er tekið mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar.
Frekari upplýsingar um stofnunina má finna á heimasíðunni www.arnastofnun.is
Helstu verkefni og ábyrgð
Eftirlit með öryggiskerfum
Öryggisgæsla í húsinu
Þátttaka í daglegum störfum öryggisdeilda
Hæfniskröfur
Reynsla af húsumsjónarkerfum og öryggismálum er æskileg
Góð íslenskukunnátta og kunnátta í ensku er nauðsynleg
Góð almenn tölvukunnátta og tæknilæsi er nauðsynleg
Mikil hæfni í mannlegum samskiptum er nauðsynleg
Stúdentspróf eða iðnmenntun er æskileg
Hreint sakavottorð er nauðsynlegt
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Um er að ræða vaktavinnu þar sem öryggisgæsla er allan sólahringinn
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 05.10.2026
Nánari upplýsingar veitir
Guðný Rósa Þorvarðardóttir
Tölvupóstur: grt@hi.is

Þjónustuaðili
Árnastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Öryggisverðir í Eddu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
22.09.2026
Umsóknarfrestur
05.10.2026