
Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Fagstjóri lækninga-Heilsugæslan Hvammi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.10.2026
Umsóknarfrestur
29.10.2026
Fagstjóri lækninga-Heilsugæslan Hvammi
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins (HH) auglýsir laust til umsóknar starf fagstjóra lækninga við Heilsugæsluna Hvammi. Fagstjóri lækninga ber ábyrgð á skipulagningu læknisþjónustu. Mikil áhersla er lögð á samvinnu milli fagstétta innan starfsstöðva HH og að þjónustuþarfir skjólstæðinga séu ávallt í fyrirrúmi. Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf sem reynir á frumkvæði, skipulagshæfileika og samskiptahæfni.
Á starfsstöðvum HH starfa fagstjóri hjúkrunar og fagstjóri lækninga. Hlutverk fagstjóra er að annast skipulag, verkstjórn og samhæfingu innan fagsviðs í samræmi við stefnu og markmið Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Á ráðningartíma mun forstjóri fela öðrum hvorum fagstjóranna að sinna verkefnum forstöðumanns samkvæmt gildandi fyrirkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skipulag, verkstjórn og samhæfing innan fagsviðs með forstöðumanni, í samræmi við stefnu og markmið Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
Er forstöðumanni innan handar við daglegan rekstur stöðvar og er staðgengill hans
Innleiðir nýjungar og vinnur að breytingum á starfsemi til hagsbóta fyrir skjólstæðinga stöðvar
Tekur þátt í gerð, innleiðingu og notkun klínískra leiðbeininga
Stuðlar að góðri vinnustaðamenningu
Tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi
Hefur umsjón með sérnámslæknum stöðvar, veitir fræðslu til nema, nýliða og starfsmanna fagsviðs í samvinnu við aðra starfsmenn stöðva
Er faglegur yfirmaður á sínu sviði og sinnir klínísku starfi samhliða
Hæfniskröfur
Sérfræðingur í heimilislækningum
Reynsla af starfi í heilsugæslu skilyrði
Þekking, reynsla og hæfni á sviði stjórnunar
Nám í stjórnun er æskilegt
Hæfni í mannlegum samskiptum
Leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri í starfi
Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt
Reynsla af rekstri innan heilbrigðisþjónustu æskileg
Reynsla af og áhugi á teymisvinnu
Góð íslenskukunnátta skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdastjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt að óska eftir hreinu sakavottorði.
Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum.
Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 29.10.2026
Nánari upplýsingar veitir
Nanna Sigríður Kristinsdóttir
Tölvupóstur: nanna.sigridur.kristinsdottir@heilsugaeslan.is
Sími: 513-5000

Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Fagstjóri lækninga-Heilsugæslan Hvammi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.10.2026
Umsóknarfrestur
29.10.2026