Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Utanrík­is­ráðu­neytið

Upplýsingar um starf

Starf

Starfsnám í utanríkisþjónustunni

Staðsetning

Óstaðbundið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.10.2026

Umsóknarfrestur

19.10.2026

Starfsnám í utanríkisþjónustunni

Utanríkisráðuneytið auglýsir starfsnám ætlað fólki sem hefur lokið BA-/BS-gráðu og stundar meistaranám eða hefur nýlokið slíku námi í grein sem tengist málefnasviði utanríkisþjónustunnar.

Markmiðið er að gefa ungu fólki sem er að hefja starfsferil sinn færi á að kynnast störfum utanríkisþjónustunnar.

Að þessu sinni er auglýst eftir starfsnemum sem munu starfa á starfsstöð utanríkisþjónustunnar hjá fastanefnd Íslands í Genf frá 1. janúar - 31. desember 2027 og sendiráði Íslands í Varsjá frá 1. janúar - 30. júní 2027.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfsnemar aðstoða starfsfólk sendiskrifstofa við margvísleg málefni utanríkisþjónustunnar.

Helsta verkefni starfsnema í fastanefndinni í Genf er að styðja við setu Íslands í mannréttindaráðinu, sinna fundarsetu, greina gögn, aðstoða við talpunkta og ræðuskrif sem og styðja við þátttöku annarra starfsmanna í samningaviðræðum um mannréttindamál. Þá mun starfsnemi fá að kynnast öðrum verkefnum fastanefndarinnar svo sem á sviði mannúðarmála, alþjóðlegra viðskiptamála og EFTA eftir því sem við verður komið.

Verkefni starfsnema í Varsjá yrðu meðal annars aðstoð við verkefni tengd umdæmisríkjum sendiráðsins, þar á meðal Úkraínu, og samstarfi innan EES-sjóðanna með Póllandi, Búlgaríu og Rúmeníu. Þá myndi starfsnemi aðstoða við undirbúning og framkvæmd verkefnisins Diplomats for Equality, sem Ísland leiðir ásamt Finnlandi árið 2027, skipulagningu viðburða og móttaka. Auk þess yrði starfsnemi sendiráðinu til aðstoðar við viðskipta- og menningarverkefni og önnur verkefni sem tengjast starfsemi sendiráðsins og umdæmisríkjum þess.

Hæfniskröfur

  • BA-, BS-, eða B.Ed.- gráða eða sambærileg menntun í grein sem tengist málefnasviði utanríkisþjónustunnar og þeim málefnum sem unnið er að á tilgreindum sendiskrifstofum.

  • Þjónustulund, skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.

  • Færni í mannlegum samskiptum.

  • Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.

  • Góð greiningarfærni og geta til að vinna með texta.

  • Góð tæknikunnátta og færni í notkun samfélagsmiðla er skilyrði.

  • Mjög góð aðlögunarhæfni.

  • Viðkomandi þarf að vera íslenskur ríkisborgari og fullnægja skilyrðum um öryggisvottun hjá Ríkislögreglustjóra sbr. reglur nr. 959/2012 bæði við upphaf ráðningar og meðan hann gegnir starfinu.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Sækja skal um stöðuna með stafrænum hætti á vef starfatorgs, www.starfatorg.is gegnum ráðningarkerfið Orra. Einungis er tekið við umsóknum með þessum hætti.

Umsækjendur skulu senda inn ferilskrá (hámark 2 bls.) ásamt kynningarbréfi (hámark 1 bls.) á íslensku og einkunnir úr háskólanámi. Umsóknir þar sem kynningarbréf eða ferilskrá eða hvort tveggja vantar, eða eru á öðru tungumáli en íslensku, verða ekki teknar til greina. Við ákvörðun um boðun í starfsviðtal verður litið sérstaklega til gæða umsóknargagna. Við ákvörðun um ráðningu verður, auk framangreindra hæfnikrafna, tekið mið af frammistöðu í starfsviðtali og umsagna sem aflað er.

Starfsnám hjá utanríkisráðuneytinu er launað og þiggja starfsnemar laun skv. kjarasamningi sem ríkið hefur gert við viðkomandi stéttarfélög. Um er að ræða tímabundna ráðningu. Ráðuneytið leggur áherslu á jafnrétti og hvetur öll til að sækja um óháð kyni. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina.

Umsóknir munu gilda í sex mánuði frá birtingu þessara auglýsingar, sbr. ákvæði 3. tölul. 2. mgr. 2. gr. reglna um auglýsingar lausra starfa nr. 1000/2019, með síðari breytingum.

Hlekk á skipulag ráðuneytisins má finna hér: Stjórnarráðið | Skipulag

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 19.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sturlaugur Sigurðsson

Tölvupóstur: sturlaugur.sigurdsson@utn.is

Þjónustuaðili

Utanrík­is­ráðu­neytið

Upplýsingar um starf

Starf

Starfsnám í utanríkisþjónustunni

Staðsetning

Óstaðbundið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.10.2026

Umsóknarfrestur

19.10.2026