
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnisstjóri við mat á erlendum umsóknum og námi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.10.2026
Umsóknarfrestur
29.10.2026
Verkefnisstjóri við mat á erlendum umsóknum og námi
Laust er til umsóknar, tímabundið til eins árs, fullt starf verkefnisstjóra við matsskrifstofu ENIC/NARIC við Háskóla Íslands. ENIC/NARIC skrifstofan sinnir akademísku mati á erlendu námi ásamt því að afgreiða umsóknir um leyfisbréf í lögbundnum iðngreinum. Auk þess veitir skrifstofan einstaklingum, háskólum og stofnunum upplýsingar um prófgráður og menntakerfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Mat á erlendum umsóknum og prófskírteinum
Mótun inntökuskilyrða Háskóla Íslands fyrir erlenda umsækjendur
Afgreiðsla mála fyrir ENIC/NARIC upplýsingaskrifstofu
Miðlun upplýsingatil stofnana, háskóla og einstaklinga um mat á erlendu námi
Mótun verklags við móttöku gagna, skráningu, skjölun og afgreiðslu umsókna í samvinnu við nemendaskrá og fræðasvið háskólans
Þátttaka í þróun heimasíðu og umsóknakerfa ENIC/NARIC
Afgreiðsla umsókna um starfsleyfi í lögbundnum iðngreinum í samstarfi við atvinnuvegaráðuneytið og fagaðila
Hæfniskröfur
Meistarapróf sem nýtist í starfi
Reynsla af sambærilegum verkefnum er kostur
Reynsla af starfi í háskólaumhverfi er kostur
Reynsla af erlendum menntakerfum er kostur
Góð tölvufærni
Góð enskukunnátta í töluðu og rituðu máli
Íslenskukunnátta er kostur
Önnur tungumálaþekking er kostur
Góð samstarfs- og samskiptahæfni
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Ferilskrá
Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins
Afrit af prófskírteinum
Upplýsingar um tvo umsagnaraðila þar sem fram koma tengsl við umsækjanda, netfang og símanúmer
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli ámálstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 29.10.2026
Nánari upplýsingar veitir
Ína Dögg Eyþórsdóttir
Tölvupóstur: ina@hi.is

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnisstjóri við mat á erlendum umsóknum og námi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.10.2026
Umsóknarfrestur
29.10.2026