
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Ljósmóðir á meðgöngu- og sængurlegudeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
07.10.2026
Umsóknarfrestur
26.10.2026
Ljósmóðir á meðgöngu- og sængurlegudeild
Laus er til umsóknar staða ljósmóður á meðgöngu- og sængurlegudeild frá 1. desember 2026. Um er að ræða starf í 50-100% starfshlutfalli í vaktavinnu. Leitað er eftir ljósmóður sem hefur áhuga á að sinna fjölskyldum í barneignarferlinu.
Deildin er 21 rúma deild og þjónar fjölskyldum eftir fæðingu, sem og annast konur sem þurfa innlögn og náið eftirlit á meðgöngu. Veitt er fagleg umönnun með fjölskylduhjúkrun að leiðarljósi. Góður starfsandi ríkir á deildinni og mörg tækifæri eru til að vaxa í starfi og styðja við umbætur í þjónustu við skjólstæðinga deildarinnar.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið enn minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ljósmóðir skipuleggur og veitir barnshafandi konum og sængurkonum umönnun í samráði við skjólstæðinga og ber ábyrgð á störfum samkvæmt starfslýsingu
Hæfniskröfur
Íslenskt ljósmóðurleyfi, hjúkrunarleyfi æskilegt
Góð samskiptahæfni og jákvætt viðmót
Öguð og skipulögð vinnubrögð
Faglegur metnaður
Góð íslensku- og enskukunnátta kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Ljósmæðrafélag Íslands hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, ljósmóðir, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 26.10.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Ljósmóðir á meðgöngu- og sængurlegudeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
07.10.2026
Umsóknarfrestur
26.10.2026